3. fundur

25.09.2026 08:15

3. fundur leikskólaráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 25. september 2026 kl. 08:15

Viðstaddir: Ásdís Ólafsdóttir formaður, Harpa Björg Sævarsdóttir, Logi Þór Ágústsson, Sighvatur Jónsson og Tinna Kristjánsdóttir.

Að auki sátu fundinn Brynja Aðalbergsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Sigurbjörg Gunnarsdóttir fulltrúi leikskólakennara, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Hildur Björnsdóttir boðaði forföll og sat Tinna Kristjánsdóttir fundinn í hennar stað.

1. Starfsdagur leikskólakennara 27. ágúst 2026 - samantekt (2026090389)

Brynja Aðalbergsdóttir leikskólastjóri Vesturbergs kynnti helstu atriði sem fram komu á starfsdegi leikskólakennara í Reykjanesbæ.

Leikskólastjórnendur Reykjanesbæjar ásamt leikskólafulltrúa komu saman 27. ágúst 2026 til að vinna að framtíðarsýn í leikskólamálum sveitarfélagsins. Unnið var í umræðuhópum í alls fimm vinnustofum þar sem málefnin voru:

- Betri vinnutími og leikskólastarfið
- Fjölgun leikskólakennara
- Faglegt starf og leikur barna sem námsaðferð leikskólans
- Börn, foreldrar og starfsfólk með erlendan bakgrunn
- Inntaka yngri barna í leikskóla Reykjanesbæjar – aðstæður og umgjörð

Farið var yfir helstu áskoranir og hindranir í hverjum hópi fyrir sig ásamt því að skoða jákvæða þætti og horfa til framtíðar með nýjum hugmyndum fyrir leikskólastarf sveitarfélagsins.

Leikskólaráð fagnar þeim gagnlegu upplýsingum sem komu fram í samantekt frá starfsdegi leikskólastjóra sem ráðið mun horfa til við áframhaldandi stefnumótun í málaflokknum.

Með því að smella hér má skoða frétt um starfsdag leikskólakennara á vef Reykjanesbæjar

2. Sumarlokun leikskóla í Reykjanesbæ - könnun (2026080344)

Ásdís Ólafsdóttir formaður leikskólaráðs lagði fram drög að könnun um sumarlokun leikskóla í Reykjanesbæ.

Leikskólaráð mun vinna málið áfram fram að næsta fundi.

3. Fjölgun leikskólakennara - spretthópur (2026090393)

Ásdís Ólafsdóttir formaður leikskólaráðs gerði grein fyrir stöðu mála í vinnu spretthóps um fjölgun leikskólakennara og helstu áherslur í áframhaldandi vinnu. Gert er ráð fyrir að spretthópurinn skili tillögum úr vinnu sinni á fundi leikskólaráðs 23. október 2026.

Sighvatur Jónsson (B) lagði fram eftirfarandi bókun:

„Fulltrúi Framsóknar í leikskólaráði Reykjanesbæjar fagnar því að spretthópur um fjölgun leikskólakennara í sveitarfélaginu nýti vinnu og tillögur frá starfshópi menntaráðs um breytingar á skipulagi í leikskólastarfi frá síðasta kjörtímabili.

Þrjár tillögur fóru þá í framhaldi til bæjarráðs þar sem valið var að innleiða tvær tillögur af þremur sem fólu í sér samræmingu leyfa í grunn- og leikskólum og afslátt á leikskólagjöldum til starfsmanna leikskóla.

Afsláttur til starfsmanna leikskóla var samþykktur á fundum bæjarráðs í júlí og ágúst 2024 (á 1475. fundi 18. júlí 2024 og nánari útfærsla á afslættinum á 1479. fundi 22. ágúst 2024). Samræming leyfa grunn- og leikskóla tók gildi 1. janúar 2025 eftir samþykkt í bæjarráði (á 1487. fundi 17. október 2024) þar sem breytingin var sú að leikskólar skyldu loka í dymbilviku og í vetrarfríum grunnskólanna og áfram vera lokaðir milli jóla og nýárs. Foreldrar sem þurfa á leikskólaþjónustu að halda geta skráð börn sérstaklega í vistun í dymbilviku og vetrarfríum (afgreiðsla menntaráðs 11. október 2024).

Þriðja tillagan fjallaði um 30 klukkustunda gjaldfrjálsan leikskóla, líkt og núverandi spretthópur er með til skoðunar. Starfshópur síðasta kjörtímabils formaði tillöguna á þá leið að fyrstu sex klukkustundir á dag yrðu gjaldfrjálsar og aðeins væri greitt fæðisgjald. Hugmyndir voru um sveigjanlegt fyrirkomulag fyrir fólk í vaktavinnu þannig að 30 klukkustundir á viku væru gjaldfrjálsar en mögulegt væri að ráðstafa þeim mismunandi niður á daga eftir þörfum. Sú lækkun sem yrði á gjaldskrá samhliða þessu fyrirkomulagi var metin að hámarki sem 10 milljóna króna tekjumissir en samtals nemur velta leikskóla Reykjanesbæjar um 3,5 milljörðum króna.“

Sighvatur Jónsson, fulltrúi Framsóknar.

4. Hagnýt tungumálakennsla fyrir starfsfólk af erlendum uppruna (2026090395)

Kolbrún Sigtryggsdóttir mannauðsráðgjafi sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti aðgengi starfsfólks Reykjanesbæjar að Bara tala, sem er starfstengt íslenskunám fyrir erlent starfsfólk.

Leikskólaráð hvetur til að fjármagni verði veitt í aðgengi starfsfólks Reykjanesbæjar af erlendum uppruna að starfstengdu íslenskunámi og leggur til að bæjarráð taki málið til skoðunar.

5. Tungumál til framtíðar - grunnur að læsi (2026090396)

Helga Andrésdóttir og Hlín Guðbergsdóttir verkefnastjórar frá Hjallastefnunni og Hulda Björk Stefánsdóttir leikskólastjóri á Velli sátu fundinn undir þessum dagskrárlið. Þær kynntu afurð verkefnisins Tungumál til framtíðar – grunnur að læsi sem er samstarfsverkefni Hjallastefnunnar og leikskólans Vallar og var unnið með styrk frá Sprotasjóði. Verkefnið felur í sér sex stutt fræðslumyndbönd til foreldra ungra barna. Um er að ræða fræðslu til foreldra um mikilvæga þætti og leiðir í uppeldi barna sem snúa að málþroska, orðaforða og almennt þeim þáttum er hafa áhrif á, og eru undirstaða, farsæls lestrarnáms. Í myndböndunum er fjallað meðal annars um framburð barna, orðaforða þeirra, skjánotkun og áhrif snuðnotkunar á framburð barna.

Leikskólaráð lýsir ánægju með vönduð og fagleg vinnubrögð við framleiðslu á efni sem nýtist skólasamfélaginu í heild sinni. Kynning á verkefninu verður birt á vef Reykjanesbæjar á næstunni.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:55. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 6. október 2026.