- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Samvinna, fagmennska og framtíðarsýn voru í forgrunni þegar stjórnendur leikskóla Reykjanesbæjar komu saman til að vinna að stefnumótun leikskólastarfs sveitarfélagsins þann 27. ágúst sl. Markmiðið var skýrt: Að byggja upp enn sterkari leikskóla fyrir börn og fjölskyldur bæjarins.

Á þessum sameiginlega vinnudegi leikskólastjórnenda var horft til framtíðar og unnið að sameiginlegri sýn fyrir leikskólastarf í Reykjanesbæ. Undir stjórn leikskólafulltrúa fóru fram áhugaverðar og líflegar vinnustofur þar sem rætt var um styrkleika starfseminnar, tækifæri til þróunar auk þess sem horft var til framtíðar varðandi áherslur í leikskólamálum sveitarfélagsins.
Reykjanesbær hefur lengi byggt upp sterkt og faglegt menntasamfélag og á vinnudeginum ríkti samstaða um að halda áfram á þeirri vegferð. Áhersla var á að þróa starfið enn frekar og tryggja börnum og fjölskyldum faglegt og öflugt leikskólastarf þar sem vellíðan, nám og þroski barna væru ávallt í brennidepli.
Dagurinn var helgaður samtali, samvinnu og sameiginlegri sýn stjórnenda leikskóla Reykjanesbæjar. Rætt var um styrkleika, tækifæri og framtíðaráherslur í leikskólastarfi sveitarfélagsins. Jafnframt var rætt um mikilvægi góðra starfsaðstæðna, hæfilegan fjölda barna í rými og leiðir til að fjölga fagfólki í leikskólum.

Börnin mikilvægust
Menntastefna Reykjanesbæjar, Með opnum hug og gleði í hjarta, byggir á þremur leiðarljósum sem eiga að einkenna allt starf með börnum og ungmennum í sveitarfélaginu. Eitt af leiðarljósum í menntastefnunni er að börnin séu mikilvægust og var sú hugsun rauður þráður í allri stefnumótarvinnunni. Stjórnendur leikskólanna voru sammála um að allar ákvarðanir um starf og þjónustu þurfi fyrst og fremst að taka mið af þörfum barna og velferð þeirra. Leikskólastjórar, ásamt leikskólakennurum og öðru fagfólki, gegna lykilhlutverki sem sérfræðingar í menntun og uppeldi yngstu barnanna.
Fagfólkið er lykillinn að farsælu starfi
Á fundinum var jafnframt lögð áhersla á að skapa áfram gott starfsumhverfi í leikskólum bæjarins þar sem fagfólk fær tækifæri til að þróa starfshætti, miðla þekkingu og taka virkan þátt í uppbyggingu leikskólastarfsins. Með öflugu faglegu samfélagi skapast betri aðstæður fyrir börn og starfsfólk svo að hægt sé að laða að og halda í hæft fagfólk í leikskólum Reykjanesbæjar.
Niðurstöður
Niðurstöður vinnunnar verða kynntar leikskólaráði á næstu dögum og í framhaldinu verður unnið að mótun sameiginlegrar sýnar leikskóla Reykjanesbæjar með hagsmuni, vellíðan og farsæld barna að leiðarljósi.