- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstödd: Bjarney Rut Jensdóttir formaður, Anna Lydía Helgadóttir, Karítas Lára Rafnkelsdóttir, Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir og Magnús Einþór Áskelsson.
Að auki sátu fundinn: Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Guðdís Malín Magnúsdóttir fulltrúi ungmennaráðs og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, Þórunn Friðriksdóttir og Ólafur Bergur Ólafsson kynntu starfsemi Tómstundamiðstöðvarinnar og þau verkefni sem undir hana heyra.
Lýðheilsuráð vekur athygli á aukinni þörf fyrir þjónustu við ungmenni í sveitarfélaginu. Eftirspurn eftir sumarstörfum fyrir 17 ára ungmenni er veruleg og upplýsingar benda til þess að fyrirtæki á svæðinu hafi í auknum mæli sett 18 ára aldurstakmark. Þá er atvinnuleysi hærra hér en í öðrum sveitarfélögum.
Aðsókn í félagsmiðstöðvar hefur einnig aukist verulega, en mæting hefur aukist um 44% á síðastliðnum mánuði. Ljóst er að þörf er á frekari stöðugildum starfsfólks innan félagsmiðstöðvanna til að mæta þessari þróun.
Jafnframt hafa komið fram áhyggjur af hópi ungmenna, 16 ára og eldri, sem skortir viðeigandi úrræði. Ráðið hvetur til þess að sérstaklega verði skoðaður möguleiki á að hefja markvissa vinnu með þessum hópi, með það að markmiði að auka stuðning, þátttöku og velferð þeirra.
Fyrir liggur mögulegur kostnaðarútreikningur vegna slíkra úrræða sem getur nýst við frekari ákvarðanatöku og útfærslu verkefnisins.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Lýðheilsuráð fagnar því að Fjörheimar séu með opnanir fyrir hinsegin ungmenni og minnir á samning sveitarfélagsins við Samtökin 78 þar sem hægt er að bjóða upp á fræðslu um hinsegin málefni ungs fólks.
Fylgigögn:
Eydís Rós Ármannsdóttir, verkefnastjóri skrifstofu velferðarsviðs, kynnti aðgerðaáætlun í innleiðingu farsældar barna í Reykjanesbæ árið 2026.
Lýðheilsuráð þakkar fyrir greinargóða kynningu á núverandi stöðu og aðgerðaráætlun um farsæld barna í sveitarfélaginu.
Lýðheilsuráð minnir á mottumars. Í tilefni af Mottumars, árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins um krabbamein hjá körlum mun ráðið standa fyrir viðburði í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurnesja líkt og undanfarin ár. Viðburðurinn verður haldinn 24. mars n.k. í Vatnaveröld, íbúum er boðið frítt í sund og frá kl. 17:00 til 19:00 verður skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem lögð er áhersla á heilsu, samveru og stuðning.
Dagskrá:
• 17:00–19:00 DJ Tósi Ljósár sér um tónlistina
• 17:15 Upphitun fyrir 5 km hlaup
• 17:30 5 km hlaup Krabbameinsfélagsins
• 18:00 Krakkahlaup
• Lýðheilsuráð bakar vöfflur til styrktar Mottumars
Einkennisorð Mottumars í ár er „Enginn einn“. Með því er minnt á að enginn eigi að þurfa að takast á við krabbamein einn síns liðs og að samfélagið allt standi saman.
Ráðið hvetur íbúa Reykjanesbæjar til að koma með okkur í sund, hugsa um heilsuna og styðja þannig við átak Krabbameinsfélagsins.
Fylgigögn:
Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sagði frá vinnu við fristundir.is en nú stendur yfir vinna við að taka niður af vefnum þau íþrótta- og tómstundatilboð sem hafa verið auglýst í vetur og hafin er vinna við að safna auglýsingum um það sem verður í boði fyrir börn, ungmenni og fullorðna sumarið 2026.
Hægt er að senda inn auglýsingar um íþrótta- og tómstundatilboð á netfangið sumar@reykjanesbaer.is fyrir 22. apríl n.k.
Fylgigögn:
Hvað verður um að vera sumarið 2026?
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:30. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. apríl 2026.