67. fundur

21.04.2026 14:00

67. fundur lýðheilsuráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 21. apríl 2026 kl. 14:00

Viðstödd:  Bjarney Rut Jensdóttir formaður, Anna Lydía Helgadóttir, Karítas Lára Rafnkelsdóttir, Hildur Björnsdóttir og Magnús Einþór Áskelsson. 

Að auki sátu fundinn: Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Guðdís Malín Magnúsdóttir fulltrúi ungmennaráðs og Erna María Svavarsdóttir ritari.

1. Frísk í Reykjanesbæ (2026040089)

Fríða Karen Gunnarsdóttir og Eva Katrín Friðgeirsdóttir mættu á fundinn og kynntu Frísk í Reykjanesbæ.

Lýðheilsuráð þakkar fyrir góða kynningu og hrósar Keflavík, íþrótta- og ungmennafélagi og Ungmennafélaginu Njarðvík fyrir frumkvæðið að standa fyrir þessu mikla lýðheilsuverkefni.

Fylgigögn:

Kynning - Frísk í Reykjanesbæ

2. Fundargerð Samtakahópsins 9. apríl 2026 (2026020246)

Fundargerð Samtakahópsins lögð fram.

3. Skessuskokk 2026 (2026040174)

Lýðheilsuráð minnir á Skessuskokkið á BAUN 2026 en Skessuskokkið fer fram laugardaginn 9. maí kl. 11:00.

Fylgigögn:

Skessuskokk laugardaginn 9. maí

4. Forvarnardagur ungra ökumanna (2026040175)

Árlegur forvarnardagur ungra ökumanna var haldinn í Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar þriðjudaginn 14. apríl sl. Nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja tóku þátt.

Markmiðið með verkefninu er að auka öryggi í umferðinni, fækka umferðarslysum og vekja ungmennin til umhugsunar um þá ábyrgð sem fylgir því að fá bílpróf.

Nemendur fengu fræðslu um afleiðingar umferðarlagabrota, sektir, tjónaskyldu og brot gegn þriðja aðila auk þess að upplifa að fara í veltibíl og prófa ölvunargleraugu.

Sviðsett var umferðarslys á planinu við Tómstundamiðstöðina við Hafnargötu 88 og fengu nemendur að sjá hvernig lögregla og sjúkraflutningamenn athafna sig þegar slys verður og klippa þarf bíl í sundur.

Lýðheilsuráð vill hrósa öllum þeim sem komu að framkvæmd þessa glæsilega verkefnis.

5. Sumar í Reykjanesbæ 2026 (2025080282)

Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir vinnu við að setja upp sumarvefinn. Skilafrestur rennur út þann 22. apríl nk. og íþrótta- og tómstundatilboðin verða kynnt á fristundir.is innan skamms.

6. Hjólað í vinnuna 1.-31. maí 2026 (2026040176)

Lýðheilsuráð hvetur öll til þátttöku í verkefninu Hjólað í vinnuna sem fer fram 1. til 31. maí 2026.

Fylgigögn:

Hjólað í vinnuna 1.-31. maí 2026

7. Hlýjan - lágþröskuldarþjónusta fyrir ungmenni (2025080515)

Lýðheilsuráð vill koma á framfæri kærum þökkum til þeirra sem komu Hlýjunni, nýrri ráðgjafaþjónustu fyrir ungmenni, á laggirnar.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:34. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 5. maí 2026.