- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður, Halldór Rósmundur Guðjónsson, Harpa Björg Sævarsdóttir, Ríkharður Ibsen og Sighvatur Jónsson.
Að auki sátu fundinn Sigurbjörg Róbertsdóttir fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Ingunn Rós Valdimarsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Ólöf Magnea Sverrisdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Lydia Helgadóttir fulltrúi leikskólakennara, Maciej Baginski fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mætti á fundinn og kynnti stöðu framkvæmda á menntasviði.
Meirihluti menntaráðs fagnar góðum árangri í uppbyggingu Holtaskóla og Myllubakkaskóla. Meirihluti menntaráðs telur mikilvægt að halda áfram uppbyggingu leikskólaplássa í Reykjanesbæ bæði með auknum plássum á núverandi leikskólum líkt og við Skógarás en einnig uppbyggingu á nýjum. Hvetur menntaráð til að farið verði sem fyrst af stað við niðurrif leikskólans Garðasels og undirbúning hönnunar á nýjum leikskóla á sömu lóð.
Halldór Rósmundur Guðjónsson (Y) lagði fram tillögu um íþróttir á skólatíma í grunnskólum Reykjanesbæjar.
Menntaráð Reykjanesbæjar fagnar framlagðri tillögu um verkefnið „Íþróttir fyrir alla – Reykjanesbær“, sem felur í sér að efla hreyfingu og þátttöku nemenda í grunnskólum bæjarins með skipulögðum íþróttum á skólatíma með áherslu á vellíðan, þátttöku sem flestra nemenda og samþættingu náms og hreyfingar í anda grunnskólalaga og menntastefnu Reykjanesbæjar.
Menntaráð telur að tillagan falli vel að menntastefnu Reykjanesbæjar og áherslum um vellíðan, jafnræði og aukna þátttöku barna í skólastarfi.
Menntaráð samþykkir að skipaður verði starfshópur sem í verði fulltrúi menntasviðs og skólastjórar Háaleitisskóla, Heiðarskóla og Njarðvíkurskóla, sem hafi það hlutverk að skoða fýsileika þess að nemendum í grunnskólum Reykjanesbæjar verði boðið að taka þátt í valkvæðum íþróttum á skólatíma, með skýrum áherslum á vellíðan og gleði, þátttöku sem flestra nemenda og samþættingu náms.
Starfshópurinn fari yfir fýsileika verkefnisins, hugsanlegar leiðir að þróun þess, sem geti verið mismunandi eftir skólum, og komi með tillögur um tímaramma og útfærslu verkefnisins til skemmri og lengri tíma.
Niðurstöður starfshópsins verði kynntar á fundi menntaráðs í apríl 2026.
Að því tilskildu að verkefnið verði metið fýsilegt er gert ráð fyrir að tilraunaverkefni geti hafist haustið 2026 í þeim skólum sem hafa áhuga á þátttöku. Starfshópnum er falið að útfæra verkefnið nánar með hliðsjón af aðstæðum og áherslum hvers skóla fyrir sig.
Fylgigögn:
Íþróttir fyrir alla - Reykjanesbær - tillaga
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs fór yfir helstu áherslur í starfsáætlun sviðsins fyrir árið 2026.
Menntaráð þakkar fyrir skýra og metnaðarfulla starfsáætlun.
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs fór yfir greinargerð um stöðu leikskólamála í Reykjanesbæ með tilliti til fjölda barna á leikskólaaldri, heildarfjölda leikskólaplássa og svigrúms sveitarfélagsins til að standa við markmið um að taka börn inn í leikskóla frá 18 mánaða aldri.
Meirihluti menntaráðs fagnar greinargerð um stöðu leikskólamála. Í greiningunni kemur fram að leikskólapláss í Reykjanesbæ eru alls 1.190. Þegar rýnt er í fjölda barna á leikskólaaldri eins og fjöldi þeirra er í sveitarfélaginu okkar núna, er ljóst að mögulegt er að taka inn öll 18 mánaða börn í leikskólana og jafnvel taka inn enn yngri börn. Fjöldi leikskólabarna hverju sinni getur breyst tiltölulega hratt með aukningu íbúa. Einnig þarf að hafa í huga mönnun leikskólanna okkar af fagmenntuðu starfsfólki og að við stöndum vörð um faglegt starf leikskólanna okkar. Engu að síður er ljóst að markmiðið um að ná inn 18 mánaða börnum mun nást á árinu, í síðasta lagi í innritun barna í ágúst. Jafnvel verður hægt að innrita yngri börn ef ytri aðstæður haldast góðar, þ.e. mönnun leikskólanna og ef ekki kemur til mikillar fjölgunar barna undir tveggja ára aldri í Reykjanesbæ.
Ríkharður Ibsen (D) lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks telur að þessari vinnu sé mjög ábótavant og kallar eftir heildstæðri greiningu. Ljóst má vera að biðlistar Reykjanesbæjar eru mun lengri en annarra sveitarfélaga. Einnig virðist vera að Reykjanesbær standi afar illa að vígi þegar kemur að því að taka börn inn í leikskóla við 18 mánaða aldur sem hefur verið lofað síðustu tvö kjörtímabil. Staðan í þessum málaflokki virðist vera langverst í Reykjanesbæ miðað við önnur sambærileg sveitarfélög á landinu. Skortur er á gögnum, sannreyndum tölum og samanburðargreiningu til þess að gera gangskör í þessum efnum. Slæm staða í leikskólamálum kemur niður á samkeppnishæfni sveitarfélagsins.
Umsögn starfsfólks skrifstofu menntasviðs um drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum lögð fram.
Menntaráð tekur undir umsögn starfsfólks skrifstofu menntasviðs. Menntaráð fagnar drögum að nýrri reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd á samræmdu námsmati. Að sama skapi tekur menntaráð undir mikilvægi þess að námsmatið eigi fyrst og fremst að nýtast innan skólakerfisins til að auka gæði náms og stuðning við nemendur en ekki til opinberrar röðunar skóla.
Fylgigögn:
Umsögn um drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum
Með því að smella hér má skoða drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum í samráðsgátt stjórnvalda
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:34. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. febrúar 2026.