396. fundur

08.05.2026 08:15

396. fundur menntaráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 8. maí 2026 kl. 08:15

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður, Halldór Rósmundur Guðjónsson, Hermann Borgar Jakobsson, Ríkharður Ibsen og Sighvatur Jónsson.

Að auki sátu fundinn Sigurbjörg Róbertsdóttir fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Ingunn Rós Valdimarsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Ólöf Magnea Sverrisdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Lydia Helgadóttir fulltrúi leikskólakennara, Maciej Baginski fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Harpa Björg Sævarsdóttir boðaði forföll og sat Hermann Borgar Jakobsson fundinn í hennar stað.

1. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar (2026050082)

Haraldur Árni Haraldsson skólastjóri tónlistarskólans mætti á fundinn og fór yfir upplýsingar um starfsemi skólans 2025-2026.

Menntaráð þakkar Haraldi fyrir komuna og fróðlegt erindi hans um verkefni tónlistarskólans og aðstöðumál í grunnskólum sveitarfélagsins. Haraldur lagði fram tillögur um ýmis mál sem snúa að tónlistarskólanum og er sviðsstjóra menntasviðs falið að fylgja þeim eftir.

Haraldur kom inn á framtíðarsýn skólans og hvetur menntaráð tónlistarskólann til að kynna hana fyrir menntaráði síðar í haust. Alls eru 920 nemendur við skólann og 53 kennarar. Tónlistarskólinn heldur að meðaltali 90 tónleika á ári. Menntaráð lýsir yfir ánægju með gott og metnaðarfullt starf tónlistarskólans.

2. Húsnæðismál leikskóla (2024040176)

Jón Stefán Einarsson frá JeES arkitektum og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mættu á fundinn og kynntu tillögu að nýju húsnæði leikskólans Garðasels. Einnig var farið yfir stöðu útboðs vegna leikskólans í Stapaskóla.

Meirihluti menntaráðs þakkar Jóni Stefáni fyrir einstaklega góða greiningu á leikskólanum Garðaseli. Greiningin gerir ráð fyrir að á lóð Garðasels verði 120 barna, 1.100 m2 leikskóli á tveimur hæðum en núverandi bygging verður rifin. Megináherslan snýr að nýtingu lóðar, aðkomu og fjölda bílastæða. Tillaga er um að fjölga sleppistæðum úr 10 í 30 auk fjölgunar starfsmannastæða úr 11 í allt að 32.

Meirihluti menntaráðs leggur áherslu á mikilvægi uppbyggingar leikskóla í norðurhluta Keflavíkurhverfis og vísar verkefninu, samkvæmt gæðaferli Reykjanesbæjar VRL-0044, til bæjarráðs og síðar til stjórnar eignasjóðs.

Í sumar verður hafist handa við undirbúning fyrir byggingu leikskólahluta Stapaskóla þar sem byggður verður portveggur við hlið hans í öryggisskyni. Útboðsgögn eru í lokayfirferð hjá eignaumsýslunni til að hægt verði að bjóða út byggingu leikskólans. Meirihluti menntaráðs leggur áherslu á að næsta verkefni til uppbyggingar leikskóla verði í Stapaskóla og að útboðið fari af stað í haust til að hægt verði að hefjast handa við bygginguna á næsta ári.

Meirihluti menntaráðs vísar verkefninu til bæjarráðs og síðar til stjórnar eignasjóðs, í takt við gæðaferil Reykjanesbæjar VRL-0044.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá við afgreiðslu málsins. Engin gögn bárust fyrir fundinn.

3. Staða innritunar í leikskóla (2026020073)

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs fór yfir upplýsingar um stöðu innritunar í leikskóla sveitarfélagsins í byrjun maí 2026.

Meirihluti menntaráðs fagnar góðum árangri í innritun leikskóla Reykjanesbæjar. Líkt og áður hefur komið fram hafa öll börn fædd á árinu 2024 fengið boð um leikskólapláss auk barna fæddra í janúar til og með apríl árið 2025. Yngstu börnin sem hefja leikskólagöngu í sumar verða því 16 mánaða en alls hefur verið úthlutað 268 plássum fyrir komandi leikskólaár.

Meirihluti bæjarstjórnar hefur allt kjörtímabilið lagt mikla áherslu á fjölgun leikskólaplássa ásamt fjölgun starfsfólks í leikskólunum okkar. Alls hafa verið byggð 300 ný pláss, en 210 úthlutað þar sem leikskólinn Garðasel flutti yfir í Asparlaut.

Meirihluti menntaráðs þakkar starfsfólki leikskóla fyrir vel unnin störf við uppbyggingu leikskólastarfs í Reykjanesbæ.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá við afgreiðslu málsins.

4. Endurmenntunarsjóður grunnskóla - úthlutun fyrir skólaárið 2026-2027 (2026050084)

Úthlutað hefur verið úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla fyrir skólaárið 2026-2027. Skrifstofa menntasviðs Reykjanesbæjar fékk styrk úr sjóðnum, einnig var verkefnum á vegum Akurskóla, Heiðarskóla, Holtaskóla, Myllubakkaskóla, Njarðvíkurskóla og Stapaskóla úthlutað styrkjum úr sjóðnum auk sameiginlegs verkefnis allra grunnskólanna í Reykjanesbæ.

Menntaráð fagnar úthlutun úr endurmenntunarsjóði grunnskóla til verkefna í Reykjanesbæ og óskar starfsfólki skrifstofu menntasviðs og grunnskólanna til hamingju. Ráðið telur ánægjulegt og jafnframt mikilvægt hversu mikil gróska er í endurmenntunarstarfi grunnskóla í sveitarfélaginu.

Fylgigögn:

Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2026

5. Nýsköpunar- og þróunarsjóður menntasviðs - úthlutun fyrir skólaárið 2026-2027 (2026030159)

Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi fór yfir úthlutanir úr nýsköpunar- og þróunarsjóði menntasviðs fyrir skólaárið 2026-2027. Markmið með sjóðnum er að stuðla að nýsköpun, framþróun og öflugu innra starfi leik- og grunnskóla í Reykjanesbæ. Áhersluþættir sem voru í forgangi þegar kom að úthlutun eru:

• Inngildandi menntun
• Við og jörðin
• Læsi – lestur, lesskilningur, ritun og tjáning
• Gervigreind í skólastarfi

Alls bárust umsóknir um styrki til 24 verkefna upp á tæplega 38 milljónir króna. Úthlutunin nær til 16 verkefna og nemur heildarfjárhæð styrkloforða 9.600.000 kr.

Menntaráð lýsir ánægju með hversu fjölbreytt og metnaðarfull verkefnin eru sem skólar Reykjanesbæjar sóttu um styrki fyrir og óskar styrkhöfum til hamingju.

Fylgigögn:

Úthlutun úr Nýsköpunar- og þróunarsjóði skrifstofu menntasviðs 2026-2027

6. Hvatningarverðlaun menntaráðs 2026 (2026050086)

Menntaráð Reykjanesbæjar efnir árlega til hvatningarverðlauna fyrir verkefni í skólastarfi sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Verðlaunin eru veitt til einstakra kennara, kennarahópa og starfsmanna í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem standa að baki verkefnunum.

Óskað er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna menntaráðs árið 2026. Hver skóli getur sent inn eina tilnefningu um áhugavert eða framúrskarandi verkefni sem hefur nýst skólanum eða skólasamfélaginu og hefur verið unnið á yfirstandandi skólaári. Skila þarf inn tilnefningum fyrir lok dags 22. maí 2026.

Verðlaunin verða afhent miðvikudaginn 3. júní 2026 kl. 16.

Fylgigögn:

Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar  2026 - kynning

7. Íslensku menntaverðlaunin 2026 (2026050085)

Opið er fyrir tillögur um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026, en að þeim standa embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök áhugafólks um skólaþróun.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbóta. Verðlaunin eru veitt ár hvert og skulu þau bera ártal þess. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum, auk sérstakrar hvatningar til aðila sem stuðlað hafa að framúrskarandi menntaumbótum. Tillögur skulu hafa borist fyrir 1. júní 2026.

Menntaráð hvetur alla sem tengjast menntasamfélagi Reykjanesbæjar til að senda inn tilnefningar um verkefni sem uppfylla skilyrði Íslensku menntaverðlaunanna.

Fylgigögn:

Íslensku menntaverðlaunin 2026 - frétt


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:19. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 19. maí 2026.