68. fundur

25.02.2026 08:15

68. fundur sjálfbærniráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 25. febrúar 2026 kl. 08:15

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður, Athena Júlía Józefudóttir, Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir og Þóranna Kristín Jónsdóttir.

Að auki sátu fundinn Bryndís Ólína Skúladóttir fulltrúi ungmennaráðs, Anna Karen Sigurjónsdóttir sjálfbærnifulltrúi, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Guðni Ívar Guðmundsson boðaði forföll.
Hjörtur Magnús Guðbjartsson boðaði forföll og sat Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir fundinn í hans stað.

1. Sveitarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ 2026 (2026010121)

Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi, Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir gæðastjóri, Eydís Rós Ármannsdóttir verkefnastjóri fjölmenningar, Kristrún Björgvinsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi og Ólafur Bergur Ólafsson, verkefnastjóri Fjörheima / 88 hússins, mættu á fundinn.

Farið var yfir stöðu kosningamála með sérstakri áherslu á þátttöku ungmenna og fólks af erlendum uppruna, kjörstaði og kjördeildir.

2. Lýðræðisleg þátttaka innflytjenda (2023030124)

Eydís Rós Ármannsdóttir verkefnastjóri fjölmenningar mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu verkefnisins.

Reykjanesbær í samstarfi við verkefnið Mitt atkvæði – Mín rödd sem stutt er af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu stendur fyrir vinnustofum fyrir íbúa af erlendum uppruna til þess að auka kosningaþátttöku í sveitarstjórnarkosningum í vor. Vinnustofurnar miða að því að auka þekkingu innflytjenda á sveitarstjórnarkosningum og hlutverki sveitarfélagsins, og hvaða áhrif kosningar hafa á nærumhverfi og þjónustu. Þá verður fjallað um réttindi innflytjenda til að kjósa og bjóða sig fram. Vinnustofurnar verða haldnar í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum dagana 19., 26. og 28. mars 2026.

Fylgigögn:

Með því að smella hér má skoða frétt um vinnustofurnar Mitt atkvæði - Mín rödd á vef Reykjanesbæjar

3. Grenndarstöðvar í Reykjanesbæ (2024040512)

Anna Karen Sigurjónsdóttir sjálfbærnifulltrúi fór yfir stöðu málsins. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti þrjár staðsetningar fyrir grenndarstöðvar, við Fitjar, Hæfingarstöðina á Ásbrú og í Höfnum en tvær staðsetningar til viðbótar eru nú í grenndarkynningu. Hafinn er undirbúningur vegna þeirra staðsetninga sem voru samþykktar.

Rætt var um nýtingu grenndarstöðva eftir áramót og förgun á úrgangi í nærumhverfi. Í samræmi við umræður á fundinum felur sjálfbærniráð Önnu Karen Sigurjónsdóttur sjálfbærnifulltrúa og Margréti Lilju Margeirsdóttur deildarstjóra umhverfismála að kanna möguleika á auknu umfangi vegna förgunar úrgangs í umhverfisviku Reykjanesbæjar í vor.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:07. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 3. mars 2026.