- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Birgir Már Bragason, Friðjón Einarsson, Grétar I. Guðlaugsson, Sigurður Garðarsson og Harpa Björg Sævarsdóttir.
Að auki sátu fundinn Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Magnþór Breki Ragnarsson, verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Á fundi þann 30. október 2025 samþykkti bæjarráð þarfagreiningu vegna fyrirhugaðra framkvæmda við endurbætur á æfingaaðstöðu Massa, lyftingardeildar UMFN í íþróttahúsinu í Ytri-Njarðvík, Ljónagryfjunni og vísaði henni til stjórnar eignasjóðs í samræmi við verklagsreglu Beiðni um viðhaldsframkvæmd, nýbyggingu eða leiguhúsnæði (VRL-0044).
Stjórn eignasjóðs vísar málinu aftur til bæjarráðs. Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdinni í fjárfestingaáætlun ársins 2026.
Fylgigögn:
Íþróttamiðstöð Njarðvíkur - tillaga að breytingum innanhúss
Á síðasta ári var farið í frumhönnun vegna stækkunar leikskólans Skógaráss og innanhússbreytinga.
Stjórn eignasjóðs samþykkir að farið verði í fullnaðarhönnun vegna stækkunar og innanhússbreytinga á leikskólanum Skógarási. Gert er ráð fyrir þeim kostnaði í fjárfestingaáætlun 2026.
Fylgigögn:
Heilsuleikskólinn Skógarás, Ásbrú - tillaga að breytingum
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við Myllubakkaskóla og áætlun fyrir árið 2026.
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu gerði grein fyrir stöðu framkvæmda við Holtaskóla og áætlun fyrir árið 2026.
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir stöðu framkvæmda við HS Orkuvöllinn.
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir stöðu framkvæmda við JBÓ völlinn.
Fylgigögn:
Afreksbraut 10 - verkteikning í vinnslu
Afreksbraut 10 - niðurrif
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir notkunarmöguleika fyrir svítur sem staðsettar eru við Myllubakkaskóla en gert er ráð fyrir að starfsemi sem í þeim er flytjist inn í húsnæði skólans á þessu ári.
Stjórn eignasjóðs felur deildarstjóra eignaumsýslu að taka saman yfirlit yfir svítur í eigu sveitarfélagsins og mögulega notkun þeirra.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:45. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 3. mars 2026.