27. fundur

26.03.2026 14:00

27. fundur stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 26. mars 2026 kl. 14:00

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Birgir Már Bragason, Friðjón Einarsson, Grétar I. Guðlaugsson og Harpa Björg Sævarsdóttir.

Að auki sátu fundinn G. Hans Þórðarson verkefnastjóri frá OMR verkfræðistofu, Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Magnþór Breki Ragnarsson, verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Sigurður Garðarsson boðaði forföll.

1. Nesvellir 4 - sameining dagdvala (2024050055)

Frumhönnun og frumkostnaðaráætlun liggja fyrir vegna sameiningar dagdvala á jarðhæð þjónustumiðstöðvar að Nesvöllum 4. Farið var yfir mögulegar fjármögnunarleiðir.

Stjórn eignasjóðs leggur til að farin verði leið B samkvæmt fyrirliggjandi tillögum um fjármögnunarleiðir. Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og deildarstjóra eignaumsýslu er falið að vinna málið áfram.

2. Myllubakkaskóli – stækkun á íþróttamannvirki (2021050174)

Viggó Magnússon frá Arkís arkitektum mætti á fundinn í gegnum fjarfundabúnað.

Fyrir liggja þarfagreining og breytingatillaga vegna mögulegrar stækkunar á íþróttahúsi Myllubakkaskóla frá upphaflegri áætlun til að uppfylla kröfur um öryggi iðkenda og möguleika á áhorfendasvæði.

Stjórn eignasjóðs samþykkir að byggt verði stærra íþróttahús en gert var ráð fyrir í upphaflegri áætlun, samkvæmt breytingatillögu. Kostnaðurinn rúmast innan heildarfjárheimilda verkefnisins.

Fylgigögn:

Myllubakkaskóli, íþróttahús - afstöðumynd
Myllubakkaskóli, íþróttahús - breytingartillaga

3. Njarðvíkurbraut 51-66 – endurnýjun leigusamnings (2019052691)

Tillaga leigutaka um endurnýjun á leigusamningi lögð fram.

Stjórn eignasjóðs hafnar tillögu leigutaka og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og deildarstjóra eignaumsýslu að vinna málið áfram.

4. Duus safnahús – endurbætur (2025080400)

Fyrir liggur tillaga að breytingum á húsnæði Duus safnahúsa til að bæta starfsmannaaðstöðu og aðgengi.

Stjórn eignasjóðs samþykkir að farið verði í framkvæmdir til að bæta starfsmannaaðstöðu í Duus safnahúsum á árinu 2026 og felur deildarstjóra eignaumsýslu að vinna að lausn á aðgengismálum.

5. Klapparstígur 7 (2026030442)

Notendur Klapparstígs 7 óska eftir framlengingu á afnotasamningi auk þess sem þeir hafa hug á að leggja nýtt gólfefni á húsnæðið.

Stjórn eignasjóðs vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.

6. Myllubakkaskóli – staða framkvæmda og kostnaðar (2021050174)

G. Hans Þórðarson verkefnastjóri frá OMR verkfræðistofu og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fóru yfir stöðu framkvæmda og kostnaðar vegna Myllubakkaskóla.

7. Holtaskóli – staða framkvæmda og kostnaðar (2022120120)

G. Hans Þórðarson verkefnastjóri frá OMR verkfræðistofu og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fóru yfir stöðu framkvæmda og kostnaðar vegna Holtaskóla.

8. Svítur og kálfar í eigu Reykjanesbæjar (2026030446)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir lista yfir svítur og kálfa í eigu Reykjanesbæjar ásamt upplýsingum um ástand og notkun þeirra. Umræða um framtíðarnýtingu þeirra verður tekin á næsta fundi stjórnarinnar.

Stjórn eignasjóðs minnir sviðsstjóra á að vinna samkvæmt verklagsreglu VRL-0044 þegar óskir eru lagðar fram um nýtingu á svítum og kálfum.

9. Staða fjárfestingarverkefna (2025080340)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir stöðu fjárfestingarverkefna.

10. Fjárfestinga- og uppfærsluverkefni - óskalisti (2026030449)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir óskir um framkvæmdir sem ekki hefur verið gert ráð fyrir í fjárfestinga- eða viðhaldsáætlun.

Stjórn eignasjóðs minnir sviðsstjóra á að vinna óskir um framkvæmdir og viðhald samkvæmt verklagsreglu VRL-0044.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:45. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. apríl 2026.