- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Guðbergur Reynisson formaður, Brynjólfur Sveinn Ívarsson, Helga Guðrún Sigurðardóttir, Eysteinn Eyjólfsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.
Að auki sátu fundinn Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Aron Heiðar Steinsson veitustjóri, Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála, Bjarni Þór Karlsson verkefnastjóri framkvæmda, Einar Jónsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Einar Þór Guðmundsson boðaði forföll og sat Helga Guðrún Sigurðardóttir fundinn í hans stað.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Njarðvíkurheiði - rekstur jarðefnamóttökusvæðis (2026060387). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 10.
Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 16. júní 2026 voru eftirtaldir kjörnir aðal- og varafulltrúar í umhverfis- og framkvæmdaráð kjörtímabilið 2026-2030:
Aðalfulltrúar: Guðbergur Reynisson (D), Brynjólfur Sveinn Ívarsson (M), Einar Þór Guðmundsson (D), Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Eysteinn Eyjólfsson (S).
Varafulltrúar: Karvel Granz (M), Helga Guðrún Sigurðardóttir (D), Harpa Sævarsdóttir (D) Eva Stefánsdóttir (B) og Elfa Hrund Guttormsdóttir (S).
Bæjarstjórn kaus Guðberg Reynisson sem formann umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Umhverfis- og framkvæmdaráð kaus í eftirtalin embætti:
Brynjólfur Sveinn Ívarsson var kjörinn varaformaður umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Einar Þór Guðmundsson var kjörinn ritari umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, kynnti mælaborð umhverfis- og framkvæmdasviðs fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2026.
a. Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri kynnti starfsemi umhverfisdeildar.
b. Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri kynnti starfsemi eignaumsýslu.
c. Aron Heiðar Steinsson veitustjóri kynnti starfsemi veitna sveitarfélagsins.
Guðbergur Reynisson, formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs, fór yfir stefnu meirihluta bæjarstjórnar og 100 daga planið.
Guðbergur Reynisson lagði fram eftirfarandi bókun meirihluta:
Meirihluti umhverfis- og framkvæmdaráðs felur sviðsstjóra að kortleggja með umhverfis- og framkvæmdasviði hvar væri hægt að bæta við bekkjum við göngu- og hjólastíga í sveitarfélaginu og framkvæma sem fyrst, sem og hvaða svigrúm er til gróðursetningar og snyrtingar á trjábeðum og opnum svæðum bæjarins.
Meirihluti umhverfis- og framkvæmdaráðs felur sviðsstjóra einnig að kortleggja með umhverfis- og framkvæmdasviði hvar hægt væri að lagfæra og/eða fjölga göngu- og hjólastígum innan sem og utan bæjarfélagsins, ráðinu finnst mikilvægt að hafist sé handa strax við þessa vinnu þar sem styttist í stærstu hátíð ársins, Ljósanótt, sem haldin verður 26. árið í röð.
Að endingu vill meirihluti umhverfis- og framkvæmdaráðs fela sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og formanni ráðsins að hafa samband við eigendur þeirra fasteigna og lóða sem hafa verið lengi í framkvæmdum eða komin í niðurníðslu og fara yfir næstu skref með þeim til þess að flýta framkvæmdum, eða lagfæringum og hafa tilbúið til umræðu á næsta fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Guðbergur Reynisson (D), Brynjólfur Sveinn Ívarsson (M) og Helga Guðrún Sigurðardóttir (D).
Fylgigögn:
Með því að smella hér má skoða málefnasáttmála Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í Reykjanesbæ 2026-2030 á vef Reykjanesbæjar
100 daga plan meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í Reykjanesbæ
Umhverfis- og framkvæmdaráð tilnefndi fulltrúa í eftirtalda samráðshópa:
Samráðshópur HB64: Guðbergur Reynisson, Eysteinn Eyjólfsson og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson.
Samráðsnefnd um þróun hafnarsvæða: Guðbergur Reynisson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson.
Tillaga að tímabundnum lausnum í samgöngumálum vegna Grænásvegar lögð fram. Gatnamótum Bergáss við Grænásveg verði lokað fyrir umferð bifreiða og bann verði sett við vinstri beygju við gatnamót Grænásvegar og Njarðarbrautar, mögulega tímabundið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar tillögunni til bæjarráðs til kostnaðarmats og til framkvæmdar eins fljótt og kostur er.
Með tilliti til umferðaröryggis barna felur umhverfis- og framkvæmdaráð sviðsstjóra að vinna kostnaðarmat og fullnaðarhönnum vegna undirganga undir Grænásveg fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Mikilvægt er að flýta þeirri vinnu.
Fylgigögn:
Undirgöng undir Grænásveg - tillaga
Sjálfbærniskýrsla Reykjanesbæjar 2025 lögð fram til kynningar.
Fylgigögn:
Sjálfbærniuppgjör Reykjanesbæjar 2025
Óskað er eftir tilnefningu á fulltrúum umhverfis- og framkvæmdaráðs í starfshóp um umhverfisviðurkenningar Reykjanesbæjar 2026.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tilnefnir Brynjólf Svein Ívarsson og Eystein Eyjólfsson í starfshópinn. Auk þeirra verður Berglind Ásgeirsdóttir garðyrkjustjóri í starfshópnum. Umhverfis- og framkvæmdaráð felur starfshópnum að vinna málið áfram í samræmi við reglur um umhverfisviðurkenningar Reykjanesbæjar.
Fylgigögn:
Reglur um umhverfisviðurkenningar Reykjanesbæjar
Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Kjörnum fulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi. Kjörnir fulltrúar munu undirrita siðareglurnar því til staðfestingar.
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, gerði grein fyrir málinu. Reykjanesbær hefur nýverið fengið starfsleyfi fyrir urðun á óvirkum úrgangi á Njarðvíkurheiði, sunnan Reykjanesbrautar og er þetta eini urðunarstaðurinn með starfsleyfi á Suðurnesjum. Unnið hefur verið að undirbúningi fyrir rekstur svæðisins, en taka þarf ákvörðun um rekstrarfyrirkomulag.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar málinu til bæjarráðs.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:15. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarráðs 2. júlí 2026.