389. fundur

22.05.2026 08:15

389. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 22. maí 2026 kl. 08:15

Viðstaddir: Róbert Jóhann Guðmundsson formaður, Eysteinn Eyjólfsson, Guðbergur Reynisson, Gunnar Felix Rúnarsson og Helga María Finnbjörnsdóttir.

Að auki sátu fundinn Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa og Erna María Svavarsdóttir ritari.

1. Tillaga að staðarheiti (2026050245)

Helga María Finnbjörnsdóttir leggur fram fh. umhverfis- og skipulagsráðs tillögu um merkingar við gömul bæjar- og sveitarfélagamörk Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir erindið og vísar verkefninu til deildarstjóra umhverfismála sem vinnur málið áfram.

Fylgigögn:

Tillaga að staðarheiti - gömul bæjar- og sveitarfélagamörk Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna

2. Framtíðarsýn Reykjaneshafnar 2035 (2025080301)

Lögð er fram í þriðja sinn framtíðarsýn fyrir starfsemi Reykjaneshafnar til komandi tíu ára sem unnin er af stjórn og stjórnendum Reykjaneshafnar, en fyrri skýrslur voru lagðar fram 2022 og 2018. Í skýrslunum er horft fram um tíu ár í starfsemi hafnarinnar og dregnar upp sviðsmyndir sem gætu raungerst gangi áætlaður rekstur og uppbygging hennar eftir. Skýrslunni er ætlað að vera upplýsingagefandi fyrir nýja stjórn Reykjaneshafnar sem tekur við að afloknum komandi sveitarstjórnarkosningum.

Lagt fram til kynningar.

Fylgigögn:

Með því að smella hér má skoða framtíðarsýnina á vef Reykjaneshafnar

3. Hraunavá á Reykjanesskaga - langtímahættumat (2026050256)

Veðurstofa Íslands gefur út skýrslu um Hraunavá á Reykjanesskaga - langtímahættumat 2026. Skýrslan inniheldur langtímahættumat vegna hraunavár, hættumatið nær frá Reykjanestá í vestri að Ölfusá í austri og Hvalfirði í norðri.

Lagt fram til kynningar.

Fylgigögn:

Með því að smella hér er hægt að kynna sér Eldfjallavá á Reykjanesskaga á vef Veðurstofu Íslands

4. Suðurgata 1 - fyrirspurn (2026030484)

Óskað er eftir því að fá að hækka þakið og mynda rishæð. Allur grunnur hússins yrði styrktur og reynt að hafa hæð þaks svipaða og á Suðurgötu 3. Einnig er óskað eftir að byggja við bílskúr tvær íbúðir til útleigu.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir hækkun á risi með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 2. Ósk um viðbyggingu við bílskúr hafnað.

Fylgigögn:

Suðurgata 1 - fyrirspurnarteikning

5. Iðavellir 10b - lóðarstækkun (2026050061)

Ingvi Þór Sigríðarson óskar eftir lóðarstækkun fyrir Iðavelli 10b. Lóðin Vatnholt 8 minnki að sama skapi.

Stækkuð lóð verður utan athafnasvæðis og innan íbúðasvæðis skv. aðalskipulagi. Samþykki lóðarhafa Vatnsholts 8 liggur ekki fyrir. Erindi hafnað.

6. Gagnaver Verne matsskylda - umsögn (2026010494)

Verne Global ehf. áformar uppbyggingu nýs gagnavers á Ásbrú í Reykjanesbæ. Gert er ráð fyrir einni byggingu ásamt búnaði og varaaflsvélum utanhúss á 24.000 m2 lóð. Áætluð raforkuþörf fyrir hýsingu tölvukerfa verður allt að 120 MW auk álags frá öðrum innviðum gagnaversins s.s. kælikerfum. Gagnaverið verður byggt upp í þremur 40 MW áföngum. Framkvæmdatími er áætlaður frá 2026-2028.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. maí 2026 samþykkt.

Fylgigögn:

Með því að smella hér er hægt að skoða málið í Skipulagsgátt

7. Hafnargata 23 - bílastæði (2026050192)

Hanna Þurý Ólafsdóttir fh. Zolo & Co leggur fram erindi þar sem óskað er eftir heimild til að sérmerkja tvö bílastæði fyrir framan Hafnargötu 23 sem einkastæði fyrir viðskiptavini Zolo & Co á virkum dögum milli kl. 11-18.

Erindi hafnað. Mikilvægt er að skoða hvort að bílastæði við Hafnargötu t.d. milli Ránargötu og Aðalgötu verði 60 mínútna stæði milli kl. 10-18.

8. Fuglavík 19 - stækkun á byggingareit (2026040019)

Lúðvík Fasteignafélag ehf. óskar eftir breytingu á byggingareit. Erindinu var hafnað á 388. fundi umhverfis- og skipulagsráðs en ný gögn hafa borist sbr. uppdrátt Glóru dags 13. maí 2026.

Samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 43. grein skipulagslaga málsgrein 2.

Fylgigögn:

Fuglvík 19 - afstöðumynd og lýsing

9. Bergvík nýtt aðal- og deiliskipulag - umsögn (2026010494)

Suðurnesjabær leggur fram vinnslutillögu að aðal- og deiliskipulagi fyrir Bergvík vegna uppbyggingar K64 hringrásariðngarðs í Helguvík og Bergvík. Óskað er umsagnar Reykjanesbæjar.

Umhverfis- og skipulagsráð leggur áherslu á iðnað sem samræmist íbúðarbyggð í Reykjanesbæ. Uppbygging iðnaðar skal uppfylla skilyrði um bestu aðgengilegu tækni (BAT) og lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Mikilvægt er að íbúum í nágrenni iðnaðarsvæðis verði tryggð heilnæm lífsskilyrði og njóti heilnæms og ómengaðs umhverfis, í samræmi við markmið laganna.

Ráðið gerir alvarlegar athugasemdir við áætlaðan reykháf sem skv. gögnum gæti trónað í 150m hæð yfir sjó og þar með myndað helsta kennileitið á Reykjanesi.

Einnig óskar ráðið eftir samtali milli Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um fráveitumál svæðisins ásamt vegtengingum á milli sveitarfélaganna.

Fylgigögn:

Aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034 - Bergvík - vinnslutillaga

Deiliskipulag - Bergvík í Suðurnesjabæ - vinnslutillaga

Deiliskipulags - Bergvík í Suðurnesjabæ - yfirlitsmynd

Vindatlas

Með því að smella hér er hægt að skoða breytingu á aðalskipulagi Bergvíkur í Skipulagsgátt

Með því að smella hér er hægt að skoða nýtt deiliskipulag Bergvíkur í Skipulagsgátt

10. Suðurnesjabær breyting á aðal- og deiliskipulagi - umsögn (2026010494)

Breyting á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar á íbúðasvæði ÍB-10 og OP-2, Skerjahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Skerjahverfis, fyrir íbúðasvæði sunnan Sandgerðisvegar.

Umhverfis- og skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við breytingarnar.

Fylgigögn:

Með því að smella hér er hægt að skoða breytingu á aðalskipulagi Skerjahverfis í Skipulagsgátt

Með því að smella hér er hægt að skoða breytingu á deiliskipulagi Skerjahverfis í Skipulagsgátt

11. Fundargerð skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar 22. apríl 2026 (2026020008)

Fundargerð 142. fundar skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar lögð fram.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:10.