454. fundur

07.05.2026 13:00

454. fundur velferðarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 7. maí 2026 kl. 13:00

Viðstaddir: Sigurrós Antonsdóttir formaður, Andri Fannar Freysson, Birna Ósk Óskarsdóttir, Eyjólfur Gíslason og Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sátu fundinn Andrea Elísabet Ragnarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs, Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Unnar Stefán Sigurðsson boðaði forföll og sat Margrét Þórarinsdóttir fundinn í hans stað.

1. Sameining dagdvala (2024050055)

Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mættu á fundinn og kynntu stöðu mála varðandi sameiningu dagdvala í húsnæði þjónustumiðstöðvar að Nesvöllum.

Velferðarráð felur deildarstjóra eignaumsýslu að vinna málið áfram í samstarfi við bæjarlögmann.

2. Frumkvæðisathugun á vinnslu barnaverndarmála (2026030114)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti úrbótaáætlun og tillögu að framkvæmd innra eftirlits í kjölfar athugasemda sem fram komu við frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á vinnslu barnaverndarmála við vistun barna utan heimilis.

Velferðarráð lýsir ánægju með viðbrögð sviðsstjóra velferðarsviðs og starfsfólks barnaverndarþjónustu við athugasemdum Gæða- og eftirlitsnefndar velferðarmála og hvetur til þess að úrbótaáætluninni verði fylgt vel eftir.

3. Frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónustu vegna barna í fóstri (2026030115)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir upplýsingar vegna frumkvæðisathugunar á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónustu vegna barna í fóstri.

4. Barnaverndarþjónusta - drög að samningi við Grindavíkurbæ (2025120125)

Drög að samningi Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar um barnaverndarþjónustu lögð fram.

Velferðarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu í bæjarráði.

5. Sértæk búsetuúrræði fyrir fatlað fólk (2026020053)

Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks, mætti á fundinn og fór yfir núverandi stöðu og þróun varðandi sértæk búsetuúrræði.

Velferðarráð þakkar Ólafi Garðari fyrir góða yfirferð. Í sjálfstæðri búsetu getur stoð- og stuðningsþjónusta verið nægjanlegur stuðningur fyrir suma umsækjendur, félagslegt leiguhúsnæði sem uppfyllir aðgengi fyrir alla góður kostur, á meðan aðrir fatlaðir íbúar þurfa viðameiri og heildstæðari þjónustu allan sólarhringinn.

Velferðarráð leggur áherslu á að brýnt er að halda áfram og klára uppbyggingu búsetuúrræða sem eru í vinnslu samkvæmt viljayfirlýsingu Brynju leigufélags og Reykjanesbæjar. Til framtíðar er ljóst að búsetuúrræðin þurfa að vera fjölbreytt og æskilegt að farið verði í ítarlegri greiningu um búsetu- og þjónustuform til framtíðar með hagsmunaaðilum eins og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks í Reykjanesbæ og notendaráði fatlaðs fólks.

6. Frumkvæðisathugun í Seljudal (2026030264)

Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks, mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.

7. Skammtímavistun fatlaðra barna (2026030166)

Á fundi bæjarráðs í morgun voru lagðar fram tillögur sem miða að því að auka þjónustu skammtímavistunar fatlaðra barna. Bæjarráð samþykkti 25% viðbótarstöðugildi í Heiðarholti sem rúmast innan fjárheimilda 2026. Auk þess var bæjarstjóra falið að vinna áfram í öðrum tillögum sem fram komu í erindinu.

8. Farsældarþing Suðurnesja 27. maí 2026 (2026050050)

Farsældarráð Suðurnesja boðar til farsældarþings 27. maí næstkomandi. Markmiðið með þinginu er að kortleggja þjónustukeðjuna fyrir börn og fjölskyldur á Suðurnesjum frá meðgöngu til loka framhaldsskóla og meta hvar hún virkar vel og hvar hún þarf að þéttast. Niðurstöðurnar verða nýttar í mótun fjögurra ára aðgerðaáætlunar fyrir svæðið.

Drög að dagskrá lögð fram.

9. Fundargerð öldungaráðs Reykjanesbæjar 4. maí 2026 (2026010018)

Fundargerð öldungaráðs Reykjanesbæjar lögð fram.

Velferðarráð óskar eftir að hagdeild vinni nánari greiningu á niðurgreiðslum sveitarfélaga á heimsendum mat.

Fylgigögn:

Fundargerð 26. fundar öldungaráðs Reykjanesbæjar 4. maí 2026

10. Fundargerðir Samtakahópsins 11. febrúar og 9. apríl 2026 (2026020246)

Fundargerðir Samtakahópsins lagðar fram.

Fylgigögn:

Fundargerð Samtakahópsins 11. febrúar 2026
Fundargerð Samtakahópsins 9. apríl 2026

11. Mælaborð velferðarsviðs (2026020247)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti mælaborð fyrsta ársfjórðungs 2026.

12. Fjárhagsaðstoð og sérstakur húsnæðisstuðningur - tölulegar upplýsingar (2026020248)

Tölulegar upplýsingar vegna fjárhagsaðstoðar og sérstaks húsnæðisstuðnings í apríl 2026 lagðar fram.

Fjárhagsaðstoð

Í apríl 2026 fengu 88 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 13.252.363 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 150.595 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð voru 27.

Í apríl 2025 fengu 132 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 19.000.794 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 143.945 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð voru 45.

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Í apríl 2026 fengu 263 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 6.692.550 kr.

Í sama mánuði 2025 fengu 274 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins, samtals 6.858.851 kr.

Áfrýjunarnefnd

Í apríl 2026 var haldinn 1 fundur í áfrýjunarnefnd og 13 erindi lögð fyrir nefndina. 9 erindi voru samþykkt, 3 erindum synjað og 1 erindi frestað.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:00. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 19. maí 2026.