Njótum saman í vetrarfríinu!

Dagana 19.-22. febrúar

Vetrarfrí leik- og grunnskólanna er um helgina og nóg í boði fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ sem vilja nýta dagana til samveru, útivistar og afþreyingar. Hér fyrir neðan getið þið séð opnunartíma og viðburði sem eru á dagskrá á bókasöfnum, söfnum og sundlaugum bæjarins yfir fríið en einnig er til dæmis tilvalið að ganga meðfram strandlengjunni, njóta haustsins og kíkja á Skessuna í hellinum.

 

Sundlaugar Reykjanesbæjar

Vatnaveröld

Virkir dagar: 06:30–21:30
Helgar: 09:00–18:00

Stapalaug

Virkir dagar: 15:00–21:30
Helgar: 09:00–18:30

Bókasöfn Reykjanesbæjar

Á bókasöfnunum verður líf og fjör í vetrarfríinu með fjölskylduvænum viðburðum.

Aðalsafn

Virkir dagar: 09:00–18:00
Helgar: 10:00–17:00

Stapasafn

Virkir dagar: 08:00–18:00
Laugardagur: 10:00–14:00

Viðburðir

  • Vetrarfrísföndur á Aðalsafni – föstudaginn 20. febrúar kl. 13:00–15:00
    Skemmtilegur viðburður fyrir fjölskyldur með ung börn til að setjast niður, spjalla og föndra saman falleg vinaarmbönd. Allt efni verður á staðnum.

  • Bókabíó barna á Aðalsafni - Ronja Ræningjadóttir – sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00
    Fjölskyldum er boðið í bókabíó á mynd um hina óviðjafnanlegu Ronju Ræningjadóttur –sýnd með íslensku tali. Öll velkomin og aðgangur ókeypis.

DUUS safnahús

Duus Safnahús, þar sem meðal annars eru Listasafn Reykjanesbæjar og Byggðasafn Reykjanesbæjar, verða opin alla helgina.
Þar geta gestir skoðað fjölbreyttar sýningar og tekið þátt í skapandi listsmiðjum fyrir alla aldurshópa.

Opnunartímar:

Þriðjudagur–sunnudagur: 12:00–17:00
Mánudagur: lokað

Viðburðir:

  • Bókamerkjasmiðja - 19-22. febrúar frá kl. 12:00–17:00
    Bókamerkjafjör allt vetrarfríið. Allt efni verður á staðnum.
  • Náttúrusmiðja með Reykjanes jarðvangi- laugardaginn 21. febrúar kl. 13:00–14:00 
  • Leynilegir íbúar Duus húsa – leiðsögn – laugardaginn 21. febrúar kl. 14:00-15:00

Opið hús í íþróttaakademíunni

Tilvalin fjölskyldustund í vetrarfríinu þar sem börnin geta hreyft sig, leikið sér og leyst út smá orku. Aðgangseyrir: 1.000 kr. Hver forráðamaður ber ábyrgð á sínu barni/börnum. 

Opnunartímar:

Fimmtudagurinn 19. febrúar
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 0–3 ára (salur uppi)
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 4–8 ára
Kl. 11:10–12:10 → Fyrir 9–12 ára

Föstudagurinn 20. febrúar
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 0–3 ára (salur uppi)
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 4–8 ára
Kl. 11:10–12:10 → Fyrir 9–12 ára

Fjörheimar – dagskrá fyrir 8.–10. bekk

Fjörheimar Stapa
Opið fimmtudaginn 19. febrúar kl. 19:00-21:30 - Imposter

Fjörheimar Háaleiti
Fimmtudaginn 19.febrúar - Hópferð á Njarðvík-KR í IceMar höllinni. Mæting er í Fjörheimar Háaleiti klukkan 18:30 og farið er saman á leikinn einnig er í boði að hitta starfsfólk á staðnum.

Sólbrekkuskógur, Trúðaskógur og Njarðvíkurskógar

Frábærir staðir fyrir fjölskyldugöngu í vetrarfríinu, smá ævintýri og fullt af fersku lofti.