Reykjanesbær og Betri bær taka höndum saman á aðventunni og bjóða áhugasömum að taka þátt í verkefninu Jólakofinn 2019.
Staðsetning: Á gangstétt milli Hafnargötu 26 og 28. Aðgengi að rafmagni.
Tímabil: 7.-23. desember á fyrirfram skilgreindum tímum.
Í jólakofanum gefst tækifæri til að selja ýmislegt skemmtilegt tengt jólum svo sem handverk, smákökur, kerti, heitt súkkulaði, laufabrauð o.s.frv. Tilvalið fyrir félög, einstaklinga og jólasveina. Jólakofinn býðst endurgjaldslaust.
Höfum gaman saman á aðventunni!
Umsækjendur skila inn umsókn sem síðan fer til afgreiðslu. Umsækjendur verða látnir vita um niðurstöðu í síðasta lagi mánudaginn 2. desember.

Persónuupplýsingar
Ósk um lánstíma (má fylla út fleiri en einn reit)