Menningar- og þjónusturáð

Menningar- og þjónusturáð fer með með málefni menningarmála, markaðsmála, vefmála, ferðamála, tölvu- og upplýsingaöryggismála auk málefna þjónustu og þróunar.
Hlutverk menningar- og þjónusturáðs er að stuðla að öflugu menningarlífi í Reykjanesbæ og góðri þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. 

Menningar- og þjónusturáð fundar fjórða þriðjudag í mánuði kl. 13:00.

Netfang menningar- og þjónusturáðs er menningar-og-thjonusturad@reykjensabaer.is

Fulltrúar í menningar- og þjónusturáði

Trausti Arngrímsson (B) - Formaður
Eydís Hentze Pétursdóttir (S) - Varaformaður
Sverrir Bergmann Magnússon (S) 
Birgitta Rún Birgisdóttir (D)
Eva Stefánsdóttir (B) 

Fundargerðir menningar- og þjónusturáðs