Umhverfisvaktin 29. júní - 16. júlí

Hér getur þú fylgst með framvindu framkvæmda í bænum og fengið nýjustu upplýsingar. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa góða mynd af því sem er í gangi í bænum hverju sinni.

Malbikun á Stapagötu og Bergvegi 13 júlí.

Colas stefnir að því að malbika Stapagötu frá kl. 09:00 – 14:00.

Einnig er áætlað að malbika Bergveg frá kl. 13:00 – 15:00, ef veður leyfir.

Sjá meðfylgjandi lokunarplan.




Lokun á Borgarvegi vegna framkvæmda 15. júlí til 30. ágúst.

Fráveita Reykjanesbæjar og HS Veitur þurfa að loka Borgarvegi, milli Klapparstígs og Brekkustígs, vegna framkvæmda.

Lokunin stendur frá 15. júlí til 30. ágúst.


Malbikunarframkvæmdir 9. júlí

Garðskagavegi verður lokað á milli Reykjanesbrautar og Stakksbrautar.
Einnig verður Miðnesheiðarvegi lokað við Sandgerðisveg og Hringbraut lokað við Hólmbertsbraut.
Hjáleiðir verða um Hringbraut,Hólmbertsbraut,Selvík og Stakksbraut.

  • Malbikun á Garðskagavegi á milli Reykjanesbrautar og Stakksbrautar (8.0.53 og 8.0.54). Framkvæmdirnar munu standa frá 09:00 til 17:00 fimmtudaginn 9. júlí. Kaflinn er 1.040 m langur.



Reykjanesbraut við Innri-Njarðvík 

Kaflinn er 370 m langur og verður þrengt í eina akrein samkvæmt teikningu 5.1.1.2 á Reykjanesbraut.
Lokað verður inn á Stapabraut frá Reykjanesbraut.


Sjá lokunarplan Grindavíkurvegur - Hringtorg við Reykjanesbraut

Sjá lokunarplan Garðaskagavegur og hringtorg við Helguvík



Lokun á Hringtorgi við Vesturgötu/Vesturbraut 8 - 16 júlí

Vegna framkvæmda verður lokað fyrir umferð um hringtorgið við Vesturgötu og Vesturbraut þegar ekið er af Hafnargötu og Ægisgötu frá þriðjudeginum 8. júlí og fram á miðvikudaginn 16. júlí.

Við biðjum vegfarendur að sýna aðgát og fylgja merkingum á svæðinu.

 



Veituframkvæmdir við Skólaveg í sumar

Vegna veituframkvæmda á vegum Fráveitu Reykjanesbæjar og HS Veitna verður Skólavegur lokaður, ásamt gatnamótum Skólavegar og Hringbrautar, á tímabilinu 11. júní til 22. ágúst 2026.

Á meðan á framkvæmdum stendur er vegfarendum bent á að kynna sér hjáleiðir hér fyrir neðan og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.

Við þökkum fyrir skilninginn og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.