Umhverfisvaktin 29. júní - 31. júlí

Hér getur þú fylgst með framvindu framkvæmda í bænum og fengið nýjustu upplýsingar. Um lifandi gögn er að ræða sem breytast reglulega og gefa góða mynd af því sem er í gangi í bænum hverju sinni.

Malbikunarframkvæmdir 24. júlí

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir föstudaginn 24. júlí.

  • Malbikun á Reykjanesbraut í austurátt framhjá Vatnsleysustrandarvegi (8.0.51). Framkvæmdirnar munu standa frá 08:00 til 20:00 föstudaginn 24. júlí.
    • Þrengt verður í eina akrein framhjá vinnusvæðinu og lokað verður inná Reykjanesbraut frá Vatnsleysustrandarvegi.  
    • Sjá lokunarplan og merkingar

  • Fræsing á Reykjanesbraut framhjá Krýsuvíkurvegi í vesturátt (8.0.52). Framkvæmdirnar munu standa frá 09:00 til 17:00 föstudaginn 24. júlí
    • Umferð á Reykjanesbraut keyrir meðfram vinnusvæðinu. Lokað verður inn á Reykjanesbraut frá Krýsuvíkurvegi.  
    • Sjá lokunarplan og merkingar

Malbiksframkvæmdir 23 júlí

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir fimmtudaginn 23. júlí.

  • Malbikun á hringtorgi á Grindavíkurvegi við Reykjanesbraut (8.0.56). Framkvæmdirnar munu standa frá 09:00 til 17:00 fimmtudaginn 23. júlí.
    • Grindavíkurvegi verður lokað á milli Reykjanesbrautar og Bláa Lónsins.  Sjá lokunarplan og merkingar
    • Vegna veðurs þarf að framlengja lokun á Grindavíkurvegi til kl 19:00 í kvöld.

  • Fræsing á Reykjanesbraut í austurátt framhjá Vatnsleysustrandarvegi (8.0.51). Framkvæmdirnar munu standa frá 09:00 til 17:00 fimmtudaginn 23. júlí.
    • Þrengt verður í eina akrein framhjá vinnusvæðinu og lokað verður inná Reykjanesbraut frá Vatnsleysustrandarvegi. 

 

 


Lokun á Grindavíkurvegi mánudaginn 20. júlí

Vegna malbikunarframkvæmda á hringtorginu við Grindavíkurveg og Reykjanesbraut verður Grindavíkurvegi lokað milli Reykjanesbrautar og Bláa Lónsins mánudaginn 20. júlí, frá kl. 09:00 til 16:00, ef veður leyfir.

Einnig verður lokað við Seltjörn, eins og fram kemur á meðfylgjandi yfirlitsmynd.

Upplýsingaskilti verða sett upp og hjáleiðir merktar. Hjáleið verður um Hafnaveg og Nesveg.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á framkvæmdasvæðinu.




Framkvæmdir á Reykjanesbraut 17. júlí

Vegagerðin hefur heimilað eftirfarandi framkvæmdir, að því gefnu að veður leyfi, mánudaginn 17. júlí.

Fræsing fer fram á Reykjanesbraut í vesturátt, við Krýsuvíkurveg. Framkvæmdir hefjast kl. 19:00 og standa til kl. 03:00 aðfaranótt 18. júlí.

Vinnusvæðið er um 1.150 metra langt og verður umferð um Reykjanesbraut þrengd niður í eina akrein samkvæmt teikningu 5.1.1.2. Umferð verður leidd meðfram vinnusvæðinu.

Lokað verður fyrir innakstur frá Krýsuvíkurvegi inn á Reykjanesbraut. Hjáleið verður um Strandgötu og Reykjanesbraut.

Upplýsingaskilti verða sett upp og hjáleiðir merktar með viðeigandi hætti.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á framkvæmdasvæðinu.





Malbikun á Stapagötu og Bergvegi 13 júlí.

Colas stefnir að því að malbika Stapagötu frá kl. 09:00 – 14:00.

Einnig er áætlað að malbika Bergveg frá kl. 13:00 – 15:00, ef veður leyfir.

Sjá meðfylgjandi lokunarplan.




Lokun á Borgarvegi vegna framkvæmda 15. júlí til 30. ágúst.

Fráveita Reykjanesbæjar og HS Veitur þurfa að loka Borgarvegi, milli Klapparstígs og Brekkustígs, vegna framkvæmda.

Lokunin stendur frá 15. júlí til 30. ágúst.


Malbikunarframkvæmdir 9. júlí

Garðskagavegi verður lokað á milli Reykjanesbrautar og Stakksbrautar.
Einnig verður Miðnesheiðarvegi lokað við Sandgerðisveg og Hringbraut lokað við Hólmbertsbraut.
Hjáleiðir verða um Hringbraut,Hólmbertsbraut,Selvík og Stakksbraut.

  • Malbikun á Garðskagavegi á milli Reykjanesbrautar og Stakksbrautar (8.0.53 og 8.0.54). Framkvæmdirnar munu standa frá 09:00 til 17:00 fimmtudaginn 9. júlí. Kaflinn er 1.040 m langur.



Reykjanesbraut við Innri-Njarðvík 

Kaflinn er 370 m langur og verður þrengt í eina akrein samkvæmt teikningu 5.1.1.2 á Reykjanesbraut.
Lokað verður inn á Stapabraut frá Reykjanesbraut.


Sjá lokunarplan Grindavíkurvegur - Hringtorg við Reykjanesbraut

Sjá lokunarplan Garðaskagavegur og hringtorg við Helguvík



Lokun á Hringtorgi við Vesturgötu/Vesturbraut 8 - 16 júlí

Vegna framkvæmda verður lokað fyrir umferð um hringtorgið við Vesturgötu og Vesturbraut þegar ekið er af Hafnargötu og Ægisgötu frá þriðjudeginum 8. júlí og fram á miðvikudaginn 16. júlí.

Við biðjum vegfarendur að sýna aðgát og fylgja merkingum á svæðinu.

 



Veituframkvæmdir við Skólaveg í sumar

Vegna veituframkvæmda á vegum Fráveitu Reykjanesbæjar og HS Veitna verður Skólavegur lokaður, ásamt gatnamótum Skólavegar og Hringbrautar, á tímabilinu 11. júní til 22. ágúst 2026.

Á meðan á framkvæmdum stendur er vegfarendum bent á að kynna sér hjáleiðir hér fyrir neðan og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.

Við þökkum fyrir skilninginn og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.