Nýjar sóttvarnaraðgerðir

Tíu manna samkomubann tók gildi á miðnætti munu takmarkanirnar gilda um allt land og í þrjár vikur. Hér fyrir neðan má sjá helstu takmarkanir og lokanir sem taka gildi á miðnætti. Almenn fjöldatakmörkun miðar við tíu manns. Grunn- og framhaldsskólum verður lokað. Leikskólar verða þó opnir. Sund- og baðstaðir eru lokaðir, líkamsræktarstöðvar líkaÍþróttir barna þar sem hætta er á snertismiti eru óheimilar. Allar upplýsingar varðandi einstaka stofnanir hjá Reykjanesbæ má finna hér

Meginreglan verður tíu manna fjöldatakmörkun og aðeins börn fædd 2015 og síðar undanskilin þeirri reglu. Öllum er skylt að nota andlitsgrímur og tryggja skal tveggja metra regluna.

Samkomutakmarkanir:

  • Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað uns páskafrí tekur við. Unnið verður að reglum um fyrirkomulag skólahalds að loknu páskafríi á næstu dögum.
  • Trú- og lífsskoðunarfélögum er heimilt að taka á móti 30 gestum við athafnir. Gestir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri en þurfa ekki að sitja í númeruðum sætum.
  • Hámarksfjöldi í erfidrykkjum, fermingarveislum og sambærilegum viðburðum er tíu manns.

Þessu verður lokað:

  • Sund- og baðstöðum er gert að loka og það sama á við um heilsu- og líkamsræktarstöðvar.
  • Óheimilt verður að stunda íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en tveggja metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar.
  • Sviðslistir og sambærileg starfsemi, svo sem bíó, eru óheimil og skemmtistaðir, krár, spilasalir og spilakassar skulu vera lokaðir.
  • Ökunám og flugnám með kennara verður óheimilt.

Veitingastaðir og verslanir:

  • Veitingastaðir mega hafa opið til klukkan 22, með að hámarki tuttugu gesti í rými sem allir skulu skráðir og fá afgreiðslu í númeruð sæti.
  • Vínveitingar skal bera til sitjandi viðskiptavina en heimilt er að taka á móti nýjum gestum til klukkan 21.
  • Verslanir mega taka á móti 5 einstaklingum á hverja 10 fermetra og að hámarki 50 manns. Tuttugu starfsmenn mega vera í sama rými og viðskiptavinir. Virða skal tveggja metra nándarreglu og grímuskyldu.
  • Áfram verður heimilt að hafa hársnyrtistofur, snyrtistofur og sambærilega starfsemi opnar.

Áfram gildir tveggja metra nándarregla:

  • Nándarregla verður áfram tveir metrar og reglur um grímuskyldu eru óbreyttar. Sem fyrr verða börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en þau falla undir fjölda- og nálægðartakmarkanir.
  • Hópsýkingarnar að undanförnu eru allar af völdum breska afbrigðis kórónaveirunnar sem er mun meira smitandi en flest önnur afbrigði og veldur frekar alvarlegum veikindum.
  • Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að hertar aðgerðir taka nú til barna allt frá grunnskólaaldri þar sem sýnt þykir að breska afbrigðið veldur meiri einkennum hjá eldri börnum en önnur afbrigði veirunnar.

Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að annars sé í meginatriðum um að ræða sömu reglur og tóku gildi 31. október á liðnu ári og gáfust vel til að kveða niður þriðju bylgju faraldursins hér á landi.