Foreldrafærninámskeið á vegum Reykjanesbæjar

Myndin tengist á engan hátt námskeiðum Fræðslusviðs heldur sýnir einungis káta krakka í einum af gr…
Myndin tengist á engan hátt námskeiðum Fræðslusviðs heldur sýnir einungis káta krakka í einum af grunnskólum Reykjanesbæjar.

Fræðslusvið Reykjanesbæjar mun standa að fjölbreyttum foreldrafærninámskeiðum á vorönn 2017. Boðið verður upp á námskeiðin Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar (2-6 ára), Klókir litlir krakkar (3-8 ára) og Uppeldi barna með ADHD (5-12 ára). Námskeiðin eiga það sameiginlegt að vera byggð á jákvæðum og árangursríkum uppeldisaðferðum og hafa það markmið að styrkja foreldra í hlutverki sínu. Foreldrar eru hvattir til þess að nýta þetta frábæra tækifæri til að styrkja sig í foreldrahlutverkinu, samræma uppeldisaðferðir sínar og hitta aðra foreldra í sambærilegri stöðu.

Námskeiðið Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar er almennt foreldrafærninámskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 2 til 6 ára. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna foreldrum leiðir til að vera samtaka í uppeldinu og skapa æskileg uppeldisskilyrði sem ýta undir færni sem líkleg er til að nýtast barninu til frambúðar. Foreldrar læra aðferðir til að styrkja eigin hæfni, laða fram æskilega hegðun barnsins og fyrirbyggja erfiðleika á jákvæðan hátt. Námskeiðið er sérstaklega þróað fyrir foreldra barna á Íslandi, þar sem stuðst er við viðurkennd fræði og gagnreyndar aðferðir. Á vorönn 2017 verða haldin alls þrjú námskeið: Námskeið 1 – 6. til 16. febrúar, námskeið 2 – 27. febrúar til 9. mars, námskeið 3 – 20. til 30. mars. Frekari upplýsingar veitir Kristín Helgadóttir leikskólastjóri, sem hefur umsjón með námskeiðunum.

Forvarnarnámskeiðið Klókir litlir krakkar er námskeið fyrir foreldra barna í leikskóla og yngstu bekkjum grunnskólans, sem eru í áhættuhópi fyrir að þróa með sér kvíðaraskanir. Námskeiðið miðar að því að fræða foreldra um eðli kvíða, kenna þeim leiðir til að takast á við kvíðahegðun barna sinna og auka sjálfstraust þeirra. Vonast er til að með slíku forvarnarnámskeiði verði hægt að minnka kvíðahegðun barna og í sumum tilfellum koma í veg fyrir að börn þrói með sér kvíðaröskun seinna meir. Á vorönn verður haldið eitt námskeið á tímabilinu 7. febrúar til 28. mars. Frekari upplýsingar veitir Einar Trausti Einarsson yfirsálfræðingur skólaþjónustu Reykjanesbæjar.

Uppeldi barna með ADHD er sérhæft námskeið ætlað foreldrum barna sem hafa hamlandi einkenni ofvirkni og/eða athyglisbrest (ADHD) samkvæmt formlegri skimun sálfræðings eða fullnaðargreiningu. Efni námskeiðsins hentar best fyrir foreldra barna á aldrinum 5 til 12 ára, sem hafa ekki margar eða flóknar fylgiraskanir. Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna og styðja þá í að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með ADHD. Foreldrar skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að upp komi. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma. Á vorönn verða haldin tvö námskeið: Námskeið 1 – 1. febrúar til 15. mars, námskeið 2 – 29. mars til 10. maí. Frekari upplýsingar veitir Einar Trausti Einarsson yfirsálfræðingur skólaþjónustu Reykjanesbæjar.

Hér má finna upplýsingar um námskeiðin.