- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Föstudaginn 29. júní verður unnið að fræsingu malbiks á vegakafla á Hafnargötu og Njarðarbraut og malbikun mánudaginn 4. júlí, ef veður leyfir. Um er að ræða kaflann frá hringtorgi á mótum Hafnargötu, Víkurbrautar og Faxabrautar og til og með hringtorgi á mótum Hafnargötu, Þjóðbrautar og Njarðarbrautar. Á Njarðarbraut er það kaflinn frá hringtorginu á mótum Hafnargötu og Þjóðbrautar að Hafnarbraut á móts við Nesvelli. Þá verður vegakaflinn frá hringtorgi á mótum Borgarvegs og Njarðarbrautar að Hafnarvegi fræstur mánudaginn 2. júlí. Vegaköflunum verður lokað og hjáleiðir merktar. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdir á þessum tveimur vegaköflum standi yfir á tímabilinu 8:00 til 17:00.
Með því að smella á þennan tengil opnast pdf skjal með framkvæmdakaflanum í heild.
Með því að smella á þennan tengil opnast pdf skjal með mynd af viðbótarframkvæmdum á Njarðarbraut.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)