Kynning á Stapaskóla

Úr samkeppnistillögu Arkís.
Úr samkeppnistillögu Arkís.

Reykjanesbær mun standa fyrir kynningu á Stapaskóla í Dalshverfi í sal Akurskóla miðvikudaginn 16. janúar. Kynningin hefst kl. 17:30 og lýkur 18:30. Framkvæmdir við fyrsta áfanga Stapaskóla hófust á dögunum. Skrifað var undir samning við Eykt ehf. undir lok síðasta árs.

Foreldrar/forráðamenn barna í Dalshverfi og allir áhugasamir um framkvæmdina eru hvattir til að mæta á fundinn. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Helgi Arnarson sviðsstjóri fræðslusviðs og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs munu sjá um kynninguna.

Með því að smella á þennan tengil opnast nánari upplýsingar um Stapaskóla 

Hér má sjá útlit Stapaskóla úr samkeppnistillögu Arkís