Námskeiðið Uppeldi barna með ADHD hefst 29. janúar

Námskeiðið er fyrir foreldra barna með ADHD.
Námskeiðið er fyrir foreldra barna með ADHD.

Sálfræðingar skólaþjónustu halda námskeið fyrir foreldra barna sem hafa hamlandi einkenni ofvirkni og/eða athyglisbrest (ADHD) samkvæmt formlegri skimun eða fullnaðargreiningu. Efni námskeiðsins hentar best fyrir foreldra barna á aldrinum 5-12 ára, sem ekki hafa margar eða flóknar fylgiraskanir.  Kennsla fer fram  á mánudögum  á tímabilinu 29. janúar til 12. mars kl. 17:00 - 19:00, að 5. mars undanskildum. 

Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna og styðja þá í að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með ADHD. Foreldrar skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að upp komi. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma. 

Námskeiðið er haldið í Fjölskyldusetrinu Skólavegi 1 og eru leiðbeinendur Einar Trausti Einarsson og Kristín Guðrún Reynisdóttir sálfræðingar.

Sálfræðingar hjá skólaþjónustu sjá um skráningu á námskeiðið. Hægt er að hafa samband við þá og óska eftir skráningu á námskeiðið í síma 421-6700 eða með því að senda tölvupóst á netfangið einar.t.einarsson@reykjanesbaer.is

Námskeiðið er niðurgreitt að stærstum hluta af skólaþjónustu. Par: 10.000 kr. / Einstaklingur: 8.000 kr. 
Greiða þarf 5.000 kr staðfestingar-gjald fyrir 25. janúar. Hægt er að greiða í þjónustuveri Reykjanesbæjar eða með því að millifæra á reikning nr. 121-26-1 kt. 470794-2169, með skýringunni: Uppeldi barna með ADHD. Kvittun greiðslu skal senda á netfangið einar.t.einarsson@reykjanesbaer.is

Hér má nálgast nánari upplýsingar um foreldrafærninámskeið sem Reykjanesbæ býður upp á