Óskað eftir tilboðum í verkframkvæmdir vegna Stapaskóla

Teikning úr hönnunargögnum Arkís arkitektum.
Teikning úr hönnunargögnum Arkís arkitektum.

Ríkiskaup, fyrir hönd Reykjanesbæjar, óska eftir tilboðum í verkframkvæmdir vegna nýs grunnskóla í Reykjanesbæ, Stapaskóla við Dalsbraut 11-13.

Heildarstærð 1. áfanga grunnskólans er brúttó um 7.700 m². Skólinn er á tveimur  hæðum auk tæknikjallara og tæknirýmis sem telst til 3. hæðar.  Verkinu skal skilað 15.júní 2020. 

Með því að smella á þennan tengil opnast vefur Ríkiskaupa með nánari upplýsingum og útboðsgögnum

Mér því að smella á þennan tengil opnast upplýsingar um skólann af vef Reykjanesbæjar

Eins og kunnugt er var ákvörðun bæjarráðs um að hafna öllum tilboðum í fyrsta áfanga kærð fyrr á þessu ári. Tilboðin voru öll vel yfir kostnaðaráætlun. Ferli við útboð hófst að nýju þegar niðurstaða kæru lá fyrir sl. sumar.