Óvissustig vegna jarðskjálftahrinu

Óvissustig Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga

English below:

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Jarðskjálftahrina hófst að kvöldi til 4. júlí og er enn í gangi.

Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni. Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar.

Óvissustig Almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi Almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila. Á óvissustigi fara viðbragðsaðilar og stofnanir yfir áætlanir sínar og viðbúnað.

Mikilvægar upplýsingar:

Reykjanesbær - Rýmingaráætlun
Reykjanesbær - Viðbrögð við jarðskjálfta
Almannavarnadeild Lögreglustjóra - Óvissustig Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga
Veðurstofa Íslands - Jarðskjálftahrina norðvestur af Þorbirni í morgun merki um kvikuhlaup


Raised alert level due to the earthquake on the Reykjanes Peninsula

The Department of Civil Protection and Emergency Management, in consultation with the Reykjanes peninsula chief of police, has declared level of uncertainty due to the earthquake on the Reykjanes Peninsula. Series of earthquakes began in the evening of July 4 and is still ongoing.

The eruption site at Mt. Fagradalsfjall is a popular destination and therefore a lot of tourists in the area. Tourism companies that offer tours to the area are encouraged to follow developments particularly closely. Tourism operators, accommodation providers and others who interact with travelers are generally asked to keep their customers informed. People are also encouraged to stay away from mountains and slopes in the area due to danger of rockfall and landslides.

Please monitor: The Department of Civil Protection and Emergency Management and Safe Travel
Reykjanesbær - Earthquake Response
Reykjanesbær - Evacuation plan