- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Ráðstefna Heilsueflandi samfélags í Reykjanesbæ verður haldin í Stapa miðvikudaginn 16. maí. Ráðstefnan hefst með hádegisverði kl. 12:30 þar sem boðið verður upp á súpu. Formleg dagskrá hefst kl. 13:00.
Rannsókn og greining mun kynna niðurstöður könnunar á hegðun og líðan ungmenna. Nokkrar nýjar spurningar voru lagðar fram í síðustu könnun og niðurstöður eru athyglisverðar.
Þá verður kynning á starfsemi samtakahópsins kynnt. Að lokum verður púlsinn á verkefninu Heilsueflandi samfélag tekinn og hugað að næstu skrefum innan Reykjanesbæjar.
Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna. Með því að smella á þennan tengil opnast skráningarform.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)