- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Rafrænn Íbúafundur um skipulagsmál verður haldinn fimmtudaginn 19. ágúst frá kl. 18:00 til 19:00. Fundurinn varðar breytingu á deiliskipulagi saltgeymslulóðar við Hafnargötu 81-85.
Í gildandi deiliskipulagstillögu er núverandi saltgeymsla fjarlægð og heimilt er að reisa þrjú fjölbýli á lóðinni. Breytingin felst í að halda saltgeymslunni sem þjónustu- húsnæði og reisa tvö háhýsi á lóðinni.
Upptaka af fundinum verður aðgengileg 31. ágúst . Opið verður fyrir samtalið eftir að fundi líkur og leitast verður við að svara öllum spurningum. Formlegar athugasemdir þurfa þó að berast skriflega eins og fram kemur í skipulagsauglýsingu á heimasíðu Reykjanesbæjar
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 31. ágúst 2021. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ eða á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is - Fundurinn verður einungis rafrænn og fer fram á Facebook síðu Reykjanesbæjar.
Upplýsingar og hlekkir:
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)