Stöðumat fyrir grunnskólanemendur af erlendum uppruna

Kristrún Sigurjónsdóttir ræðir hér kennslu í fjöltyngdum bekk á námskeiðinu í Hljómahöll.
Kristrún Sigurjónsdóttir ræðir hér kennslu í fjöltyngdum bekk á námskeiðinu í Hljómahöll.

Innleiðing stöðumats fyrir nemendur af erlendum uppruna er að hefjast í grunnskólum Reykjanesbæjar. Í vikunni var haldið námskeið í Hljómahöll fyrir fulltrúa allra grunnskóla í Reykjanesbæ, Árborg og Hafnarfirði. Námskeiðið sóttu einnig aðilar frá Miðju máls og læsis, Menntamálastofnun, KÍ og Fellaskóla, sem komið hafa að verkefninu.

Fræðslusvið Reykjanesbæjar, fræðslu- og frístundaþjónusta Hafnarfjarðar og skólaþjónusta Árborgar hafa átt í samstarfi um þróun stöðumats fyrir nýja nemendur af erlendum uppruna sem eru tiltölulega nýkomnir til landsins. Verkefnið gengur m.a. út á það að styrkja nám, líðan og félagslega stöðu þessara nemenda í skólum.

Með stöðumatinu er hægt að staðsetja nemendur og auðvelda þar með kennurum og skólastjórnendum að skipuleggja nám hvers nemanda út frá styrkleika hans og þörfum. Lagt er mat á fyrri þekkingu og reynslu sem og læsi og talnaskilning. Stöðumatið er sænskt að uppruna og hefur verið notað með góðum árangri þar.

Háaleitisskóli í Reykjanesbæ, Lækjarskóli í Hafnarfirði og Vallaskóli í Árborg hafa verið þátttökuskólar frá byrjun. Nú verður hins vegar unnið að því að koma stöðumatinu í framkvæmd í öllum skólum sveitarfélaganna þriggja, að sögn Kolfinnu Njálsdóttur deildarstjóra skólaþjónustu hjá Reykjanesbæ.

Stöðumat líka í leikskólana

„Við getum sagt að nú sé Stöðumatið loksins farið út í kosmosið eftir mikinn undirbúning og samvinnu faghópsins sem er skipaður sérfræðingum úr sveitarfélögunum þremur. Á döfinni er að fylgja því eftir. Meðal þess sem verður gert er að halda sambærilegt námskeið og við vorum með í Hljómahöll fyrir alla grunnskóla í Reykjavík í næsta mánuði. Svo erum við hvergi nærri hætt því faghópurinn er búinn að láta þýða svipað efni fyrir leikskóla. Því verður hrint af stað í vetur með Hjallatún sem þátttökuskóla Reykjanesbæjar í undirbúningnum.

Tengdar fréttir af stöðumati

Innleiðing á stöðumati fyrir nýja nemendur af erlendum uppruna

Samstarfsverkefni þriggja sveitarfélaga fær styrk úr sprotasjóði

Horft yfir þátttakendahópinn á námskeiðinu í Hljómahöll