Sumaropnun í Sundmiðstöð tekur gildi 1. júní

Gaman í sundlaugarpartý á Ljósanótt 2018. Ljósmynd: Víkurfréttir
Gaman í sundlaugarpartý á Ljósanótt 2018. Ljósmynd: Víkurfréttir

Sumaropnun tekur gildi í Sundmiðstöð/Vatnaveröld laugardaginn 1. júní og gildir til 20. ágúst. Í sumar verður opið kl. 6:30 til 21:30 mánudaga til föstudaga og kl. 9:00 til 18:00 laugardaga og sunnudaga. Sundlaugargestir hafa 10 mínútur til að yfirgefa sundmiðstöðina eftir lokunartíma. 

Í sundlaug Njarðvíkur tekur sumaropnun gildi föstudaginn 7. júní og gildir til 19. ágúst. Þá verður opið í gufu, heita potta og Massa mánudaga til föstudaga kl. 10:00 til 20:00. Lokað verður laugardaga og sunnudaga.

Allar nánari upplýsingar um sundlaugar í Reykjanesbæ má nálgast hér.

Sjáumst í sundi í sumar!