Laus störf

Reykjanesbær er fjórða stærsta sveitarfélag landsins og þar starfa yfir 1.200 manns. Hjá sveitarfélaginu starfar samhentur hópur sem vinnur að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í þágu bæjarbúa.

Meginstefna Reykjanesbæjar ber yfirskriftina „Í krafti fjölbreytileikans“, en sveitarfélagið leggur ríka áherslu á að vera fjölskylduvænn bær sem styður og eflir hæfileika allra. Þetta kemur fram í öflugu skóla-, íþrótta- og menningarstarfi.

Reykjanesbær er vottað barnvænt sveitarfélag af UNICEF á Íslandi og vinnur markvisst að því að skapa samfélag þar sem allir hópar fá rödd og tækifæri til þátttöku.

Leikskólinn Drekadalur - Kennarar

Nýr leikskóli, leikskólinn Drekadalur í Innri Njarðvík hóf starfsemi í nýju og glæsilegu húsnæði þann 17. nóvember 2025. Við erum að leitar eftir drífandi, skipulögðum og jákvæðum kennurum í okkar frábæra teymi þar sem starfsandinn í Drekadal er góður og einkennist af virðingu, jákvæðni, gleði og góðri samvinnu. Um fjölbreytt framtíðarstörf er að ræða sem krefst góðra hæfni í mannlegum samskiptum.

Leikskólinn Drekadalur mun taka á móti um 120 nemendum. Í Drekadal er lögð áhersla á samvinnu, nýtingu mannauðs, flæði og útinám ásamt leik barna sem er gert hátt undir höfði í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans er gleði, leikur, virðing og hugrekki og einkunnarorð leikskólans er með opnum hug og gleði í hjarta þar sem við viljum að öllum börnum, foreldrum og starfsfólki líði vel. 

Helstu verkefni:

  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Taka þátt í skipulagningu starfs
  • Taka þátt í foreldrastarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur honum
  • Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Færni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakarvottorð skilyrði 

Hlunnindi:

  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum 
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Um er að ræða 50% til 100% starfshlutföll sem allra fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Ef ekki fæst kennari til starfa verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun og eða reynslu innan leikskóla.

Sótt er um á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf. Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Upplýsingar gefur María Petrína Berg leikskólastjóri, netfang maria.p.berg@drekadalur.is S. 8523964

Umsóknarfrestur til: 15. desember 2025

Sækja um þetta starf

Leikskólinn Hjallatún -Leikskólakennari / Starfsfólk

Leikskólinn Hjallatún óskar eftir að ráða leikskólakennara eða háskólamenntaðan starfsmann

Leikskólinn Hjallatún er opinn leikskóli og starfar eftir fjölgreindarkenningu Howard Garnders. Áhersla er á frjálsa leikinn, lýðræði og samskipti.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni: 

  • Uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
  • Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun æskileg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Hlunnindi:

  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða starfsmann með aðra menntun eða reynslu sem nýtist í starfi.

Um 100% starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst. Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Sótt er um á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf. Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Upplýsingar gefur Ólöf Magnea Sverrisdóttir, leikskólastjóri, netfang: Olof.M.Sverrisdottir@hjallatun.is

Umsóknarfrestur til: 15. desember 2025

Sækja um þetta starf

Leikskólinn Völlur -Sérkennslustjóri

Starfssvið: Sérkennslustjóri

Leikskólinn Völlur á Ásbrú auglýsir eftir metnaðarfullum sérkennslustjóra í fullt starf sem hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum.

Leikskólinn Völlur er sex kjarna leikskóli með 95-110 nemendum sem er aldurs og kynjaskiptur. Um 75% barna eru tví-eða fjöltyngd og eru þjóðerni nemenda því fjölbreytt.

Námskrá leikskólans byggir á hugmyndafræði Hjallastefnunnar. Svokallaðar meginreglur liggja til grundvallar allri hugmyndafræði Hjallastefnunnar.

Einkunnarorð Vallar eru: Agi-Jákvæðni-Sjálfstyrking-Vinátta-Samskipti-Áræðni

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og er mikilvægt að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum. 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í samstarfi við aðra stjórnendur leikskólans.
  • Er faglegur umsjónaraðili sérkennslu í leikskólanum, annast ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans og upplýsingagjöf til foreldra.
  • Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.
  • Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni.
  • Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
  • Sinnir sérkennslu barna og barnahópa með íhlutun.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari (leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Framhaldsmenntun í sérkennslu æskileg.
  • Þekking og reynsla af sérkennslu í leikskólum.
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna.
  • Góð hæfni í mannlegum í samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður.
  • Góð íslenskukunnátta.  

Hlunnindi: 

  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Um framtíðarstarf er að ræða í 100% starfshlutfall eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og félags leikskólakennara.  

Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, undir Laus störf. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

 

Upplýsingar gefur Hulda B Stefánsdóttir, skólastjóri á Velli netfang: hulda.stefansdottir@leikskolinnvollur.is S. 421-8410.

Umsóknarfrestur til: 22. desember 2025

Sækja um þetta starf

Velferðarsvið - Ráðgjafi í barna- og fjölskylduteymi

Reykjanesbær leitar að öflugum og framsæknum ráðgjafa í 100% starf til að ganga til liðs við hóp metnaðarfullra sérfræðinga í barna- og fjölskylduteymi velferðarsviðs bæjarins þar sem lögð er áhersla á snemmtækan stuðning og þverfaglegt samstarf i málefnum fjölskyldna.

Starfið krefst víðtækrar þekkingar á sviði félagslegrar þjónustu, málefna fatlaðs fólks og málefnum barna og fjölskyldna.  

Reykjanesbær hefur sett sér stefnu um velferð íbúa og samfélagsins til ársins 2030. Yfirskrift stefnunnar er Reykjanesbær í krafti fjölbreytileikans.

Lögð er áhersla á að nýta til fulls kosti fjölbreytileikans og efla alla bæjarbúa til að búa sér og börnum gott líf með virkri þátttöku í samfélaginu. Jafnframt er lögð áhersla á að auka lífsgæði og samskipti bæjarbúa og veita jöfn tækifæri til heilbrigðs lífs og hamingju með vellíðan íbúa að leiðarljósi.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og er mikilvægt að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Félagsleg ráðgjöf, þjónusta og stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur.
  • Móttaka, greining og úrvinnsla á umsóknum um þjónustu.
  • Málsstjórn, gerð einstaklingsáætlana og eftirfylgd mála.
  • Heildarsýn yfir málefni einstaklinga og fjölskyldna.
  • Þverfaglegt samstarf. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. félagsráðgjöf, uppeldis og menntunarfræði þroskaþjálfi.
  • Þekking og reynsla á samþættingu mála skv. lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Reynsla af því að vinna með börnum og ungmennum með stuðningsþarfir.
  • Þekking og reynsla á sviði félagsþjónustu sveitarfélaga kostur.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur.
  • Þekking og reynsla af vinnu með fólki af erlendum uppruna kostur.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sterk leiðtogafærni.
  • Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu.
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og hæfni til þverfaglegs samstarfs.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð. 

Hlunnindi:

  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó

Launakjör eru í samræmi við samning Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Sótt er um á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbær.is, undir laus störf. Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eða uppruna, eru hvattir til að sækja um.

Upplýsingar gefur Vilborg Pétursdóttir Teymisstjóri barna- og fjölskylduteymis, netfang: Vilborg.Petursdottir@reykjanesbaer.is

Umsóknarfrestur til: 30. desember 2025

Sækja um þetta starf

Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn

Hjá Reykjanesbæ starfa um 1.200 manns í fjölbreyttum störfum, og við leitum reglulega að hæfileikaríku og jákvæðu fólki til að bætast í hópinn. Hér getur þú sent inn almenna umsókn til sveitarfélagsins.

Við bjóðum eingöngu tímabundin afleysingastörf sem vara að hámarki í 12 mánuði samfellt, t.d. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.

Ef þú hefur ákveðnar óskir um starfshlutfall eða tímavinnu, vinsamlegast taktu það fram í umsókninni. Tímabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst, en stjórnendur skoða gagnagrunninn okkar þegar störf losna og hafa samband við viðeigandi umsækjendur. Störfin geta verið bæði í 100% starfshlutfalli og hlutastörf. Almennar umsóknir eru geymdar í grunninum í allt að 6 mánuði.

Við hvetjum þig einnig til að fylgjast með auglýstum störfum á heimasíðu Reykjanesbæjar og sækja sérstaklega um ef þú hefur áhuga á ákveðnu starfi.

Vinsamlegast athugið að almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega.

Upplýsingar gefur Mannauður og starfsumhverfi, starf@reykjanesbaer.is

Umsóknarfrestur til: 31. desember 2025

Sækja um þetta starf