632. fundur

17.05.2022 17:00

632. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn í Merkinesi, Hljómahöll 17. maí 2022 , kl. 17:00

Viðstaddir: Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Baldur Þ. Guðmundsson, Díana Hilmarsdóttir, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir og Styrmir Gauti Fjeldsted. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.
Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Fundargerðir bæjarráðs 5. og 12. maí 2022 (2022010004)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Friðjón Einarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Baldur Þ. Guðmundsson, Guðbrandur Einarsson, Margrét A. Sanders, Díana Hilmarsdóttir, Kjartan Már Kjartansson, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Gunnar Þórarinsson.

Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1368. fundar bæjarráðs 5. maí 2022
Fundargerð 1369. fundur bæjarráðs 12. maí 2022

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 6. maí 2022 (2022010013)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi liði fundargerðarinnar frá 6. maí til sérstakrar samþykktar:

Fjórði liður fundargerðarinnar Sóltún 12 - bílskúr (2022040235) samþykktur 11-0 án umræðu.
Níundi liður fundargerðarinnar Borgarvegur 12 – bílskúr (2022050108) samþykktur 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Margrét A. Sanders, Guðbrandur Einarsson og Friðjón Einarsson.

Margrét A. Sanders, Baldur Þ. Guðmundsson og Anna Sigríður Jóhannesdóttir Sjálfstæðisflokki og Margrét Þórarinsdóttir sitja hjá vegna 3. máls í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs. Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 293. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 6. maí 2022

3. Fundargerð lýðheilsuráðs 10. maí 2022 (2022010010)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Anna Sigríður Jóhannesdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 29. fundar lýðheilsuráðs 10. maí 2022

4. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 10. maí 2022 (2022010009)

Forseti gaf orðið laust.

Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu.

Fylgigögn:

Fundargerð 161.fundur ÍT

5. Fundargerð velferðarráðs 11. maí 2022 (2022010014)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 410. fundar velferðarráðs 11. maí 2022

6. Sjálfbærniskýrsla Reykjanesbæjar (2021010385)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Guðbrandur Einarsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Fylgigögn:

Sjálfbærniskýrsla Reykjanesbaejar 2021

 

Fráfarandi bæjarfulltrúar tóku til máls. Fyrstur kom í pontu Jóhann Friðrik Friðriksson Framsóknarflokki sem sat eitt kjörtímabil og situr nú á Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn. Síðan kom Anna Sigríður Jóhannesdóttir Sjálfstæðisflokki og á eftir henni kom Styrmir Gauti Fjeldsted Samfylkingu sem bæði sátu eitt kjörtímabil. Gunnar Þórarinsson var næstur í pontu með sitt kveðjuávarp. Hann hefur setið í bæjarstjórn frá 2010, fyrst fyrir Sjálfstæðisflokk og síðustu tvö kjörtímabil fyrir Frjálst afl. Þá var komið að Baldri Þ. Guðmundssyni Sjálfstæðisflokki sem einnig hefur setið í bæjarstjórn frá 2010. Að lokum tók til máls Guðbrandur Einarsson frá Beinni leið. Hann kom fyrst inn í bæjarstjórn 1998 sem varamaður en hefur síðan setið sem aðalmaður fjögur kjörtímabil. Hann situr nú á Alþingi fyrir Viðreisn.

Þökkuðu þau ánægjulegt og gott samstarf bæjarfulltrúa. Sömuleiðis þökkuðu þau bæjarstjóra Kjartani Má Kjartanssyni og öllu starfsfólki Reykjanesbæjar fyrir góða samvinnu á kjörtímabilinu.

Forseti Guðbrandur Einarsson minntist Magneu Guðmundsdóttur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Ásbjörns Jónssonar bæjarlögmanns sem létust langt um aldur fram.
Að lokum þakkaði forseti Guðbrandur Einarsson starfsmönnum, bæjarfulltrúum og öðrum nefndarmönnum fyrir vel unnin störf á kjörtímabilinu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00