- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Helga María Finnbjörnsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Sigurrós Antonsdóttir. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Helga María Finnbjörnsdóttir.
Fundargerðirnar samþykktar 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 1563. fundar bæjarráðs 7. maí 2026
Fundargerð 1564. fundar bæjarráðs 15. maí 2026
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 8. maí til sérstakrar samþykktar:
Annað mál fundargerðarinnar, Njarðvíkurhöfn H4 - breyting á aðalskipulagi (2025120205). Til máls tók Hjörtur Magnús Guðbjartsson. Samþykkt 11-0.
Þriðja mál fundargerðarinnar, Iðavellir 14b og Vatnsholt 2 VÞ12 - breyting á aðalskipulagi (2019060056), samþykkt 11-0 án umræðu.
Sjöunda mál fundargerðarinnar, Hlíðarhverfi 3. áfangi – deiliskipulag (2019120007). Til máls tók Guðbergur Reynisson. Samþykkt 11-0.
Tíunda mál fundargerðarinnar, Valhallarbraut 761 (2024110113), samþykkt 11-0 án umræðu.
Ellefta mál fundargerðarinnar, Vatnsholt 10-12 og 20-22 – lóðir (2026040332), samþykkt 11-0 án umræðu.
Tólfta mál fundargerðarinnar, Reykjanesvegur 40 - fyrirspurn (2026040111), samþykkt 11-0 án umræðu.
Fjórtánda mál fundargerðarinnar, Iðavellir 1 - viðbygging (2026040356), samþykkt 11-0 án umræðu.
Fimmtánda mál fundargerðarinnar, Vatnholt 14 - viðbygging (2026040002), samþykkt 11-0 án umræðu.
Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Guðbergur Reynisson og Kjartan Már Kjartansson.
Forseti tók fundarhlé kl. 17:29.
Fundur aftur settur kl. 17:37.
Til máls tóku Guðbergur Reynisson og Margrét A. Sanders.
Til máls tók Helga María Finnbjörnsdóttir (Y) og lagði fram bókun meirihluta bæjarstjórnar:
Mál 4 frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs, M2 miðbær – breyting á aðalskipulagi (2019060056)
Bókunin var dregin tilbaka.
Forseti tók fundarhlé kl. 17:43.
Fundur aftur settur kl. 17:50.
Til máls tók Helga María Finnbjörnsdóttir (Y) og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar:
Mál 4 frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs, M2 miðbær – breyting á aðalskipulagi (2019060056)
„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar ítrekar að M2 svæðið í aðalskipulagi er stórt og afmarkast af Hafnargötu, Njarðvíkurbraut, Náströnd, Aðalgötu, Klapparstíg og Vatnsnesvegi sem er samtals 17,8 hektarar að stærð. Breytingin felur í sér fjölgun íbúða og byggingarmagns á svæði sem þegar er vel tengt stofn- og tengivegum samkvæmt aðalskipulagi. Aðkoma akandi að svæðinu er mest um Hafnargötu, sem liggur í gegnum svæðið sem Lífæðin. Nú þegar hefur fjöldi íbúða á þessu svæði verið fullnýttur skv. núverandi skipulagi og því er mikilvægt að samþykkja þessa aðalskipulagsbreytingu til að tryggja áframhaldandi uppbyggingu á þessu svæði.
Aðalskipulagstillagan var auglýst eins og lög og reglur gera ráð fyrir en ein athugasemd barst frá Skipulagsstofnun sem var í raun ekki efnisleg athugasemd. Það eru aðilar að bíða eftir heimild til að fara í frekari uppbyggingu t.d. á Hafnargötu. Því er þessi aðalskipulagsbreyting samþykkt.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Díana Hilmarsdóttir og Róbert Jóhann Guðmundsson Framsókn, Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið og Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.
Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki sitja hjá í máli 1 Akademíureitur - breyting á aðalskipulagi (2025010481).
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 388. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 8. maí 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 70. fundar sjálfbærniráðs 6. maí 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu.
Fylgigögn:
Fundargerð 454. fundar velferðarráðs 7. maí 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Til máls tók Hjörtur Magnús Guðbjartsson (S) og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar:
Mál 1 frá fundargerð atvinnu- og hafnarráðs, Njarðvíkurhöfn – brimvarnargarður (2023080391)
„Um árabil hefur verið til umræðu að flytja skipastól Landhelgisgæslu Íslands til Njarðvíkurhafnar og hefur ríkt mikil samstaða á meðal heimamanna í Reykjanesbæ um verkefnið.
Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð 26. maí 2023 af Jóni Gunnarssyni, þáverandi dómsmálaráðherra, og lutu áformin að gerð langtímaleigusamnings um viðlegukant, auk nauðsynlegrar aðstöðu fyrir þau tæki og búnað sem tilheyra rekstrinum, auk veituþjónustu.
Enn er mikill áhugi hjá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ að gera Njarðvíkurhöfn að heimahöfn Landhelgisgæsluskipa, enda aðstaðan einstaklega hentug og í aðeins 6-7 mínútna akstursfjarlægð frá aðstöðu Landhelgisgæslu Íslands á Keflavíkurflugvelli og gott samgöngunet við höfuðborgarsvæðið.
Staðsetning skipa Landhelgisgæslunnar í Reykjanesbæ fremur en Reykjavík hefur ekki áhrif á viðbragðstíma til norðurs, svo sem til Vestfjarða, en myndi stytta viðbragðstíma um a.m.k. tvær klukkustundir suður fyrir landið.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar því á dómsmálaráðherra að taka af skarið og framfylgja áður undirritaðri viljayfirlýsingu og skapa Landhelgisgæslu Íslands aðstöðu til framtíðar í Reykjanesbæ.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Díana Hilmarsdóttir og Róbert Jóhann Guðmundsson Framsókn, Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið og Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.
Til máls tóku Alexander Ragnarsson og Hjörtur Magnús Guðbjartsson.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 308. fundar atvinnu- og hafnarráðs 7. maí 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 396. fundar menntaráðs 8. maí 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu.
Fylgigögn:
Fundargerð 68. fundar lýðheilsuráðs 11. maí 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 205. fundar íþrótta- og tómstundaráðs 12. maí 2026
Til máls tóku Helga María Finnbjörnsdóttir frá Beinni leið, Margrét A. Sanders frá Sjálfstæðisflokki og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:20.