- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstödd: Bjarney Rut Jensdóttir formaður, Margrét A. Sanders, Karítas Lára Rafnkelsdóttir, Hildur Björnsdóttir og Magnús Einþór Áskelsson.
Að auki sátu fundinn: Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Guðdís Malín Magnúsdóttir fulltrúi ungmennaráðs og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Anna Lydía Helgadóttir boðaði forföll og sat Margrét A. Sanders í hennar stað.
Jón Norðfjörð, formaður Ballskáksfélags Suðurnesja og Sæmundur Pétursson formaður Virkjunar mættu á fundinn og kynntu starfsemi Virkjunar í Reykjanesbæ.
Lýðheilsuráð þakkar fyrir greinargóða kynningu og mjög gott starf sem þarna fer fram.
Fylgigögn:
Kynning á Virkjun mannauðs í Reykjanesbæ
Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir notkun eldri borgara á frístundastyrk Reykjanesbæjar fyrir árið 2025.
Lýðheilsuráð fagnar aukinni lýðheilsuvitund eldri borgara og hvetur bæjarbúa til að huga að lýðheilsu sinni – nú sem endranær.
Fylgigögn:
Frístundastyrkur eldri borgara - uppgjör 2025
Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir fjölbreytt íþrótta- og tómstundatilboð sem standa bæjarbúum til boða og eru kynnt á vefsíðunni fristundir.is.
Fylgigögn:
Sumar í Reykjanesbæ - auglýsing
Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir skipulag íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsumála í Reykjanesbæ.
Lýðheilsuráð í samráði við Önnu Sigríði Jóhannesdóttur býður upp á lýðheilsugöngu í Barnalundi við Njarðvíkurskóg miðvikudaginn 19. maí kl. 16.00.
Lýðheilsuráð hvetur öll til að mæta og koma saman og ganga létta 2,3 kílómetra göngu.
Fylgigögn:
Meirihluti lýðheilsuráðs leggur fram eftirfarandi bókun:
Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar leggur áherslu á mikilvægi þess að ráðið starfi áfram á næsta kjörtímabili.
Á undanförnum árum hefur lýðheilsuráð gegnt mikilvægu hlutverki í að efla heilsu og vellíðan íbúa Reykjanesbæjar með því að stuðla að forvörnum, heilsueflingu og aukinni vitund um lýðheilsumál. Ráðið hefur unnið markvisst að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu íbúa á öllum aldri.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á málefni barna og ungmenna, farsæld þeirra, geðheilsu, starf félagsmiðstöðva og mikilvægi þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Ráðið hefur meðal annars fjallað um niðurstöður rannsókna á líðan og hegðun barna og ungmenna í Reykjanesbæ, aukna þörf fyrir stuðning og úrræði, sem og mikilvægi öflugra forvarna og félagslegrar þátttöku.
Í störfum ráðsins hefur jafnframt komið skýrt fram mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar og stuðnings við félagsmiðstöðvar sveitarfélagsins, auk þess að tryggja úrræði fyrir ungmenni sem standa höllum fæti félagslega eða hafa takmarkað aðgengi að virkni og atvinnu.
Lýðheilsuráð hefur einnig staðið fyrir og stutt fjölmörg heilsueflandi verkefni og samfélagsátök, svo sem Skessuskokkið, Lífshlaupið, aðventugönguna og Mottumars, auk þess að hvetja til aukinnar þátttöku í hreyfingu og skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Þá hefur ráðið verið mikilvægur samstarfsvettvangur milli sveitarfélagsins, skólasamfélagsins, heilbrigðisþjónustu, íþrótta- og félagasamtaka og ungmennaráðs.
Ráðið telur mikilvægt að málefni forvarna, félagsmiðstöðva og samhæfing heilsueflandi verkefna innan sveitarfélagsins heyri áfram undir lýðheilsuráð, enda tengjast þau með beinum hætti lýðheilsu, farsæld og lífsgæðum íbúa.
Lýðheilsumál verða sífellt mikilvægari þáttur í þjónustu sveitarfélaga og því telur lýðheilsuráð mikilvægt að tryggja áframhaldandi starfsemi þess á næsta kjörtímabili, þannig að hægt verði að byggja áfram á þeirri þekkingu, samvinnu og uppbyggingu sem þegar hefur skapast til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
Bjarney Rut Jensdóttir (B), Karítas Lára Rafnkelsdóttir (B), Hildur Björnsdóttir (S) og Magnús Einþór Áskelsson (S).
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram eftirfarandi bókun:
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að verkefni tengd lýðheilsu séu skýr, markviss og vel skilgreind innan stjórnsýslunnar. Ef lýðheilsuráð verður lagt niður mun verkefnum þess áfram vera sinnt, en færast undir önnur svið eða nefndir eftir því sem við á. Markmiðið er að tryggja skilvirka stjórnsýslu og að verkefnin nýtist sem best í þágu íbúa. Lýðheilsa verður ekki efld með fleiri flækjustigum í stjórnsýslunni
Margrét A. Sanders (D).
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:50. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 19. maí 2026.