237. fundur

16.01.2020 17:00

237. fundur stjórnar Reykjaneshafnar haldinn fimmtudaginn 16. janúar 2020 kl. 17:00 á skrifstofu Reykjaneshafnar að Víkurbraut 11, 230 Reykjanesbæ

Mættir: Hjörtur Magnús Guðbjartsson formaður, Hanna Björg Konráðsdóttir aðalmaður, Kristján Jóhannsson aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður, Úlfar Guðmundsson aðalmaður og Halldór Karl Hermannsson hafnarstjóri.


DAGSKRÁ

1. Fjármál Reykjaneshafnar (2020010192)

Hafnarstjóri fór yfir ýmislegt er snýr að fjármálum hafnarinnar. Lagt er til að hafnarstjóri kanni möguleika á endurfjármögnun á hluta af langtímaskuldum hafnarinnar til að létta á greiðslubyrði hafnarinnar í framtíðinni. Samþykkt samhljóða.

2. Framtíðarsýn Reykjaneshafnar til 2030 (2019110194)

Stjórn Reykjaneshafnar samþykkti á 235. fundi sínum 21. nóvember s.l. að taka til endurskoðunar framtíðarsýn Reykjaneshafnar sem lögð var fram á 212. fundi stjórnarinnar 23. janúar 2018. Hafnarstjóri kynnti næstu skref í þeirri vinnu.

3. Aalborg Portland Ísland ehf. (2020010194)

Hafnarstjóri kynnti samkomulag milli Reykjaneshafnar og Aalborg Portland Ísland ehf. varðandi fyrirkomulag á greiðslu vörugjalda á innfluttu sementi árið 2020. Lagt er til að samkomulagið verði samþykkt og hafnarstjóra falið að undirrita það. Samþykkt samhljóða.

4. Ellert Skúlason ehf. (2020010193)

Reykjaneshöfn hefur heimilað lögaðilum efnisvinnslu jarðefnis á hafnarsvæðinu í Helguvík gegn ákveðnum skilyrðum. Hafnarstjóri kynnti drög að samkomulagi við Ellert Skúlason ehf. varðandi slíka vinnslu. Lagt er til að hafnarstjóri vinni viðkomandi drög áfram og leggi fyrir stjórn til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

5. Upplýsingagjöf hafnarstjóra (2020010195)

Hafnarstjóri fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi hafnarinnar.

6. Önnur mál (2020010196)


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:40. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 21. janúar 2020.