Framnesvegur breyting á deiliskipulagi

Framnesvegur breyting á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi 23. ágúst 2022 að auglýsa eftirfarandi deiliskipulagstillögur í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingu á deiliskipulaginu Framnesvegur 11 með uppdrætti og kynningargögnum dags. 7. júlí 2022. Breytingin felur í sér fjölgun íbúða um 23, eða úr 87 íbúðir í 110 en nýtingarhlutfall óbreytt.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. október 2022.

Skila skal inn skriflegum umsögnum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ. Eða á netfang skipulagsfulltrúa skipulag@reykjanesbaer.is.

 

DEILISKIPULAGSTILLÖGUR

 

Reykjanesbær 31. ágúst 2022

Skipulagsfulltrúi