Aðventugarðurinn lokaður á Þorláksmessu

Vegna gulra veðurviðvarana og með öryggi gesta og þátttakenda að leiðarljósi er fyrirhugaðri dagskrá í Aðventugarðinum aflýst í dag á Þorláksmessu.

Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna með okkur á aðventunni og óskum íbúum og gestum Reykjanesbæjar gleði- og friðarjóla.