Nú þegar áramótin eru að koma hvetjum við íbúa Reykjanesbæjar til að:
Hirða upp flugeldaruslið og fara með á grenndarstöðvar
Reykjanesbær býður íbúum að skila stórtækari flugeldarusli í ker við hlið grenndastöðva í sínu hverfi. Þeir sem eru með lítið rusl geta flokkað það heima í viðeigandi tunnur.
Skila jólatrjám á grenndarstöðvar
Reykjanesbær býður íbúum að skila jólatrjám í ker við hlið grenndastöðva í sínu hverfi eftir helgina. Vinsamlegast leggið þau snyrtilega við hlið grenndarstöðva – en ekki fyrir framan gáma – svo þau fjúki ekki eða valdi óþægindum. Ekki skal skilja trén eftir við lóðamörk í bænum.
Starfsmenn Reykjanesbæjar munu sækja trén þangað og koma þeim í endurvinnslu.
Velja "Umhverfi" og svo "Grenndar- og endurvinnslustöðvar"
Takk fyrir að hjálpa okkur að hreinsa til eftir jólin, saman stuðlum við að snyrtilegu umhverfi!