Skráning í frístundir og sumarnámskeið er hafin

Nú er opið fyrir skráningu í frístundir og sumarnámskeið í Reykjanesbæ og er margt spennandi í boði fyrir alla aldurshópa. Öll ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi – hvort sem áhuginn liggur í íþróttum, listum, útivist eða annarri tómstundastarfsemi.

Frístundavefurinn frístundir.is veitir yfirsýn yfir allt það fjölbreytta sem í boði er í Reykjanesbæ. Þar er einfalt að sía niðurstöður eftir aldri og staðsetningu, og því geta íbúar Reykjanesbæjar valið „Reykjanesbær“ til að sjá það sem er í boði. 

Á vefnum má einnig finna hugmyndir að skemmtilegum stöðum fyrir útivist og samveru. Við hvetjum alla íbúa til að kynna sér úrvalið og skrá sig tímanlega.
Gleðilegt sumar!

  • Skoðaðu úrvalið á frístundir.is og veldu „Reykjanesbær“ til að sjá það sem er í boði hér.