Skipulag Gunnuhver í Grindavík og Reykjanesbæ

Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti þann 30. maí 2017 og Bæjarstjórn Reykjanesbæjar 20 júní 2017 að auglýsa tillögur á deiliskipulagi skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Gunnuhver sem er á mörkum Grindavíkur og Reykjanesbæjar.
Tilgangur verkefnisins er að vinna skipulag fyrir Gunnuhver og nágrenni þar sem lögð er áhersla á að bæta og gera aðgengi að svæðinu öruggara. Að auka gildi svæðisins til útivistar en um leið verði umferð betur stýrt og þannig verndað fyrir auknum ágangi.

Megin markmið með deiliskipulaginu eru eftirfarandi:
• Að skilgreina aðkomu að svæðinu.
• Að afmarka bíla- og rútustæði afmörkuð.
• Skilgreina og staðsetja núverandi og nýja áningarstaði.
• Bæta í heild sinni aðstöðu til útivistar.
• Bætt upplýsingagjöf um svæðið.
• Að áninga- og útisýnisstaðir sem og stígagerð verði aðlagaðir sem best að landinu til að minnka sjónræn áhrif.

Deiliskipulagstillagan er til sýnis á skrifstofu Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, 2. hæð frá kl: 9 - 16 alla virka daga, á heimasíðu bæjarins www.grindavik.is. Bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12 eða heimasíðu Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is. Tillögurnar eru í kynningu frá og með 5. júlí 2017 til og með 17. ágúst 2017. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og þurfa að berast frá og með 5. júlí 2017 og eigi síðar en 17. ágúst 2017 annað hvort á bæjarskrifstofu Grindavíkur, Víkurbraut 62 eða á netfangið: armann@grindavik.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Greinargerð - Gunnuhver

Fh. Grindavíkurbæjar
Ármann Halldórsson
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
armann@grindavik.is