31. fundur

22.06.2022 14:00

31. fundur framtíðarnefndar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 22. júní 2022 kl. 14:00

Viðstaddir: Íris Ósk Ólafsdóttir formaður, Hafsteinn Hjartarson, Guðni Ívar Guðmundsson, Jón Helgason, Þóranna Kristín Jónsdóttir.

Aneta Grabowska boðaði forföll og sat Hafsteinn Hjartarson varamaður fundinn í hennar stað.

Að auki sátu fundinn Halldóra Guðrún Jónsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. Skipting embætta í framtíðarnefnd (2022060216)

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 7. júní 2022 voru eftirtaldir kjörnir aðal- og varafulltrúar í framtíðarnefnd kjörtímabilið 2022-2026:

Aðalfulltrúar: Þóranna Kristín Jónsdóttir (B), Íris Ósk Ólafsdóttir (S), Aneta Grabowska (B), Jón Helgason (S), Guðni Ívar Guðmundsson (D).

Varafulltrúar: Hafsteinn Hjartarson (B), Hubert Kaminski (S), Guðný Ólöf Gunnarsdóttir (B), Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir (S), Guðmundur Rúnar Júlíusson (D).

Framtíðarnefnd kaus í eftirtalin embætti:

Íris Ósk Ólafsdóttir var kjörin formaður framtíðarnefndar.
Þóranna Kristín Jónsdóttir var kjörin varaformaður framtíðarnefndar.
Guðni Ívar Guðmundsson var kjörinn ritari framtíðarnefndar.

2. Erindisbréf framtíðarnefndar (2022060217)

Erindisbréf framtíðarnefndar lagt fram.

Fylgigögn:

Erindisbréf framtíðarnefndar

3. Siðareglur kjörinna fulltrúa (2022060218)

Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram.

Fylgigögn:

Með því að smella hér má skoða siðareglur kjörinna fulltrúa á vef Reykjanesbæjar

4. Verkefni framtíðarnefndar 2018-2022 (2022060429)

Halldóra Guðrún Jónsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra fór yfir helstu verkefni framtíðarnefndar á síðasta kjörtímabili.

Fylgigögn:

Verkefni framtíðarnefndar kjörtímabilið 2018-2022 - kynning


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:46. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarráðs þann 30. júní 2022.