41. fundur

10.05.2023 08:15

41. fundur framtíðarnefndar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 10. maí 2023 kl. 08:15

Viðstaddir: Þóranna Kristín Jónsdóttir varaformaður, Aneta Grabowska, Guðni Ívar Guðmundsson, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir.

Íris Ósk Ólafsdóttir boðaði forföll og sat Hjörtur Magnús Guðbjartsson fundinn í hennar stað.

Að auki sátu fundinn Halldóra Guðrún Jónsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra, Silja Kolbrún Skúladóttir fulltrúi ungmennaráðs og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. Erindisbréf framtíðarnefndar - drög til umsagnar (2023050182)

Forsetanefnd óskar eftir umsögn um drög að uppfærðu erindisbréfi framtíðarnefndar.

Framtíðarnefnd felur Halldóru G. Jónsdóttur aðstoðarmanni bæjarstjóra að vinna umsögn samkvæmt framkomnum athugasemdum og senda til forsetanefndar.

2. Mannauðsstefna Reykjanesbæjar 2023 - drög til umsagnar (2023040237)

Bæjarráð óskar eftir umsögn um drög að mannauðsstefnu Reykjanesbæjar 2023.

Framtíðarnefnd lýsir ánægju með mannauðsstefnuna og gerir ekki athugasemdir við hana.

3. Fjórða iðnbyltingin og helstu áhrif á samfélagið (2023050187)

Þóranna Kristín Jónsdóttir varaformaður framtíðarnefndar hélt fyrirlestur um fjórðu iðnbyltinguna og helstu áhrif hennar á samfélagið í Reykjanesbæ. Í kjölfarið voru umræður um stöðuna í Reykjanesbæ, helstu tækifæri og áskoranir.

4. Lýðræðisstefna Reykjanesbæjar (2023030124)

Vinnu við lýðræðisstefnu er frestað til haustsins.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:15. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 16. maí 2023