390. fundur

05.06.2026 08:15

390. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 5. júní 2026 kl. 08:15

Viðstaddir: Gunnar Felix Rúnarsson, Aðalgeir Jónsson, Jón Már Sverrisson, Róbert Jóhann Guðmundsson og Hjörtur Magnús Guðbjartsson.

Að auki sátu fundinn Andrea Elísabet Ragnarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingarfulltrúa og Erna María Svavarsdóttir ritari.

1. Verkefni umhverfis- og skipulagsráðs (2026060050)

Skipulagsfulltrúi fór yfir helstu verkefni skipulagsráðs.

Lagt fram.

2. Stefna um ljósvist í Reykjanesbæ (2025090508)

Aron Heiðar Steinsson veitustjóri mætti á fundinn og kynnti drög að stefnu um ljósvist ásamt aðgerðaáætlun fyrir Reykjanesbæ og óskaði heimildar til að halda áfram með málið.

Umhverfis- og skipulagsráð heimilar veitustjóra að halda áfram með málið.

3. Mælaborð umhverfis- og framkvæmdasviðs (2025050559)

Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs kynnti mælaborð sviðsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2026.

Lagt fram.

4. Endurskoðun aðalskipulags (2026060051)

Samkvæmt 35. gr. skipulagslaga metur sveitarstjórn hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið að loknum sveitarstjórnarkosningum.

Lagt fram.

5. Akademíureitur - breyting á aðalskipulagi (2025010481)

Bæjarstjórn staðfesti á fundi sínum þann 19. maí afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs frá fundi dags. 8. maí á lýsingu og vinnslutillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir reit M3. Óskað er heimildar til að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi.

Erindi frestað. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir 5-0 að fela Erlu Bjarný Gunnarsdóttur, lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs, að vinna málið áfram í samstarfi við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra.

Fylgigögn:

Með því að smella hér er hægt að skoða málið í Skipulagsgátt

6. M2 miðbær - breyting á aðalskipulagi (2019060056)

Bæjarstjórn staðfesti á fundi sínum þann 19. maí afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs frá fundi dags 8. maí á lýsingu og vinnslutillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir reit M2. Óskað er heimildar til að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi.

Umhverfis- og skipulagsráð heimilar að senda tillöguna til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til skoðunar fyrir auglýsingu og auglýsa í framhaldinu.

Fylgigögn:

Aðalskipulagsbreyting - M2 miðbær - greinargerð

Með því að smella hér er hægt að skoða málið í Skipulagsgátt

7. Njarðarbraut milli Norður- og Suður Fitja - aðal- og deiliskipulag (2025110452)

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi. Breytingin felst í að Grænás verði í breyttri legu og að gert er ráð fyrir hringtorgi við Njarðarbarbraut. Lögð er fram til auglýsingar skipulagslýsing og vinnslutillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Njarðarbraut milli Norður- og Suður Fitja sbr. uppdrætti Eflu verkfræðistofu.

Umhverfis- og skipulagsráð óskar eftir umsögn frá atvinnu- og hafnarráði.

8. Suðurbrautarreitur Ásbrú - deiliskipulag (2023030660)

Af2 arkitektar fh. Stofnhúss leggja fram vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Suðurbrautarreit, 3,3ha reitur kenndur við Suðurbraut 765. Á reit er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum á 3-5 hæðum með allt að 300 íbúðum af fjölbreyttri gerð. Sérstakir byggingarreitir eru ætlaðir sérstakri notkun annarri en fyrir íbúðir, t.d. samkomuhús, garðskála o.fl.

Samantekt umsagna og viðbrögð sveitarstjórnar liggja fyrir. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að senda deiliskipulagstillöguna til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til endanlegrar afgreiðslu.

Fylgigögn:

Suðurbrautarreitur - greinargerð

Suðurbrautarreitur - deiliskipulagsuppdráttur

Suðurbrautarreitur - athugasemdir frá Skipulagsgátt

Með því að smella hér er hægt að skoða málið í Skipulagsgátt

9. Hringbraut 130 (2026040204)

Tengibygging tímabundinnar lögreglustöðvar við bílgeymslu lögreglustöðvarinnar við Hringbraut sbr. uppdrætti Glóru.

Umhverfis- og skipulagsráð telur að breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitafélagsins og umsækjanda og samþykkir því breytinguna skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 3. Minnt er á að um er að ræða bráðabirgðahúsnæði og stefnt er á að nýtt húsnæði verði tekið í notkun árið 2028 sbr. umsókn dags. 23. nóvember 2023, sjá mál 8. Hringbraut 130 - bráðabirgðahúsnæði (2023110431) frá 328. fundi umhverfis- og skipulagsráðs.

Fylgigögn:

Hringbraut 130 - tengibygging

10. Hafnargata 45 (2026050242)

Vegna breytinga á annarri hæð hússins er sótt um nýjar svalir á norðausturhlið hússins vegna endurbættrar flóttaleiðar frá efri hæð sbr. uppdrætti JeES arkitekta.

Samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 43. grein skipulagslaga málsgrein 2.

Fylgigögn:

Hafnargata 43-45 - aðaluppdrættir

11. Bolafótur - viðhorfskönnun (2019051640)

Bolafótur Fasteignir ehf. óskar heimildar til að stækka skipulagssvæðið og fjölga íbúðum úr 27 í allt að 40 með því að bæta við þremur nýjum raðhúsalóðum. Um mikilvægt og viðkvæmt svæði er að ræða. Umhverfis- og skipulagsráð fól skipulagsfulltrúa að kanna hug íbúa til mögulegra breytinga. Könnun var send íbúum og rekstraraðilum á svæðinu. Send voru út 64 bréf. 18 svör bárust. 14 voru á móti en 4 með.

Breyting á skipulagi er ekki tímabær, erindi hafnað. Róbert Jóhann Guðmundsson og Hjörtur Magnús Guðbjartsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Fylgigögn:

Bolafótur - viðhorfskönnun

12. Stapabraut 21 - auglýsingaskilti (2026010463)

Atlantsolía sækir um breytingu á LED verðskilti. Ljósbúnaður verður endurnýjaður og skiltaflötur stækkaður sbr. aðaluppdrætti Teiknistofunnar Traðar dags. 22. janúar 2026. Umsóknin var grenndarkynnt. Athugasemdir bárust.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir breytinguna til reynslu til eins árs og lýsingin verði sambærileg og LED skilti Atlantsolíu við Hólagötu.

Fylgigögn:

Stapabraut 21 - teikningar og byggingarlýsing

Með því að smella hér er hægt að skoða málið í Skipulagsgátt

13. Götuheiti að urðunarstað Njarðvíkurheiði (2026060008)

Á njarðvíkurheiði sunnan við Reykjansesbraut liggur gata að urðunarstað og spennuvirki. Lagðar eru fram tillögur að götuheiti.

Umhverfis- og skipulagsráð leggur til að gatan beri eftirfarandi nafn: Vörðuhóll.

14. Grenndarstöðvar Reykjanesbæ (2025050211)

Staðsetning við Afreksbraut var send í grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.

Erindi samþykkt.

Fylgigögn:

Grenndargámar við Afreksbraut

Með því að smella hér er hægt að skoða málið í Skipulagsgátt

15. Afnot af landi (2026060041)

AtNorth óska eftir tímabundnum afnotum af landi sbr. erindi dags. 20. maí 2026.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir tímabundna landnotkun til þriggja ára, sveitarfélaginu að kostnaðarlausu og með fyrirvara um samþykki landeigenda.

Fylgigögn:

AtNorth - bílastæði

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:12. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 16. júní 2026.