Mammút

LÁTUM OKKUR STREYMA

- Tónleikaröðin heldur áfram! 
- Fram koma Kælan mikla, Auður og Mammút!

 
Hljómahöll og Rokksafn Íslands hafa boðið landsmönnum upp á ýmsa tónlistartengda viðburði í gegnum streymi á netinu undanfarnar vikur en fernum tónleikum hefur verið streymt á netinu auk þess sem þeir hafa verið sýndir í sjónvarpi og útvarpi. Tónleikarnir eru enn aðgengilegir á Facebook-síðu Hljómahallar og í Sarpinum á ruv.is. Þá hélt Dr. Gunni tvo Popppunkta í gegnum streymi á Facebook þar sem fólk gat spreytt sig á spurningum um íslenska popp- og rokksögu. 

Ákveðið hefur verið að halda áfram með tónleikaröðina Látum okkur streyma og verða tónleikar haldnir einu sinni í viku næstu þrjár vikurnar. Þeir tónlistarmenn sem koma fram eru Kælan miklaAuður og Mammút
 
Tónleikadagskrá í beinni útsendingu á Facebook-síðu HljómahallarRÚV2Rás 2 og ruv.is og Facebook-síðu Víkurfrétta:

Kælan mikla – 22. apríl kl. 20:00
Auður – 29. apríl kl. 20:00
Mammút – 6. maí – kl. 20:00
 
Allar nánari tímasetningar og dagskrá verður kynnt á Facebook-síðu Hljómahallar og Rokksafns Íslands. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar en við mælum með að fólk skoði Facebook-síður okkar til að fá nýjustu fréttir og dagskrá.

Smelltu hér til að opna Facebook-síðu Hljómahallar.
Smelltu hér til að opna Facebook-síðu Rokksafns Íslands.
 
Góðar stundir! 
Hljómahöll & Rokksafn Íslands