Grenndarstöðvar hafa flust

Kalka sf. vill koma á framfæri að tvær grenndarstöðvar hafa fengið nýtt heimili.

Grenndarstöðin við Stapabraut hefur verið flutt og er nú staðsett við áningarstað á Fitjum.
Sjá staðsetningu hér:
Grenndargámar við fitjar

Grenndarstöðin við Hringbraut 125 hefur einnig verið flutt og er nú staðsett við Afreksbraut.
Sjá staðsetningu hér:
Grenndargámar við afreksbraut

Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur nýju staðsetningarnar áður en lagt er af stað.

Takk fyrir að flokka!