Gul viðvörun vegna hvassviðris

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir Faxaflóa vegna suðvestan hvassviðris eða storms með dimmum éljum.

Viðvörunin gildir frá föstudeginum 20. mars kl. 08:00 til laugardagsins 21. mars kl. 08:00.

Búast má við suðvestanátt 15–23 m/s með dimmum éljum og slæmu skyggni. Líkur eru á versnandi færð, sérstaklega á fjallvegum, og varasömu ferðaveðri. Einnig má búast við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda.

Íbúar eru hvattir til að fylgjast með veðurspám og haga ferðum sínum eftir aðstæðum.