- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Barna- og unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur, í samvinnu við Nettó og Reykjanesbæ standa fyrir sínu árlega körfuboltamóti í Reykjanesbæ helgina 7. og 8. mars 2026. Þetta er jafnframt 34. mót félaganna. Mótið er fyrir drengi og stúlkur í minnibolta fædd árið 2015 og síðar.
Það má búast má við þúsundum gesta til Reykjanesbæjar þessa helgi. Forsvarsmenn veitingastaða, verslana og aðrir sem bjóða upp á hverskyns afþreyingu eru hvattir til að vera vel undirbúnir undir helgina og tilbúnir til að taka við miklum fjölda gesta. Það er markmið allra sem koma að mótinu að taka vel á móti öllum þeim sem heimsækja okkur. Við viljum að gestir okkar kveðji Reykjanesbæ með jákvæðum hug að loknu móti.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)