Vetrarþjónustan í fullum gangi

Reykjanesbær vill minna íbúa á vetrarþjónustu sveitarfélagsins og hefur Umhverfismiðstöð Reykjanesbæjar yfirumsjón með snjómokstri og hálkuvörnum á götum, gangstéttum og göngustígum.

Þær götur sem eru í forgangi eru strætóleiðir, stofnbrautir og helstu tengibrautir sem liggja í átt að neyðarþjónustu s.s. sjúkrahúsi, lögreglu og slökkvistöð auk gatna sem liggja í átt að skólum og leikskólum.

Þær götur sem liggja í brekku eru einnig í forgangi hvað varðar hálkueyðingu. Leitast er við að moka bílastæði við grunn- og leikskóla þótt það sé ekki í forgangi en oftast eru bílastæðin hreinsuð daginn eftir. Húsagötur eru ekki mokaðar nema að þær séu orðnar þungfærar. Ekki er mokað frá innkeyrslum og þurfa íbúar að sjá um það sjálfir. Við hálkueyðingu gatna er eingöngu notast við salt og þá í eins litlu magni og mögulegt er.

Íbúar eru hvattir til að senda ábendingu er varða snjómokstur og hálkuvarnir í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins

Til að stuðla að öruggara umhverfi í hlákunni næstu daga býður Umhverfissvið Reykjanesbæjar bæjarbúum að sækja sér sand til hálkuvarna. Íbúar geta sótt sand í eigin ílát á nokkrum stöðum í bænum og notað hann til að hálkuverja innkeyrslur og nærsvæði sín.

Hvar er hægt að nálgast sand?
Sandhrúgur hafa verið settar á níu staði í Reykjanesbæ og eru merktir með rauðum punktum á yfirlitskorti:

  • Á Heiðarbergi
  • Á neðra planinu við Grófina 2
  • Á planinu við Reykjaneshöll
  • Hjá Umhverfismiðstöðinni, Fitjabraut 1c
  • Við Trönudal 9
  • Stapabraut 1 (Rammi)
  • Lindarbraut á milli 637-639
  • Á Þjóðbraut, við Grænásbraut
  • Á planinu við félagsheimilið í Höfnum

Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta úrræði og tryggja þannig betri aðstæður á sínum heimilislóðum.

Deildu þessari tilkynningu með öðrum til að tryggja að sem flestir viti af þessu!