Þrír kjörstaðir í sveitarstjórnarkosningunum

Í komandi sveitarstjórnarkosningum, sem fara fram laugardaginn 16. maí, verða kjörstaðir í Reykjanesbæ þrír. Skipting kjósenda eftir kjörstöðum er eftirfarandi:

  • Keflavík og Njarðvík:
    Kjörstaður verður í Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
  • Ásbrú og Hafnir:
    Kjörstaður verður í Ráðhúsi Reykjanesbæjar, Grænásbraut 910.
  • Innri Njarðvík:
    Kjörstaður verður í Stapaskóla.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvar þeirra kjörstaður og kjördeild er áður en haldið er á kjörstað. Upplýsingar um það má nálgast á vef Þjóðskrár.

Kjörstaðir verða opnir frá kl. 09:00–22:00.

Mikilvægt er að kjósendur hafi gild skilríki meðferðis.