Umhverfisvaktin 11. maí - 17 maí

Umhverfisvaktin

Lokun á Norðurtúni vegna framkvæmda við Myllubakkaskóla 12.–13. maí

Þriðjudaginn 12. maí hefjast framkvæmdir við nýbyggingu B-álmu Myllubakkaskóla þar sem hífa þarf Fíligran-plötur (forsteyptar einingar) á byggingarsvæðið.

Vegna framkvæmdanna verður ekki hjá því komist að loka Norðurtúni og gervigrasfótboltavellinum dagana 12. og 13. maí.

Bílkrani og langur flutningabíll verða staðsettir á Norðurtúni á meðan vinnu stendur.

Íbúar við Norðurtún, sem og nemendur og starfsfólk Myllubakkaskóla, eru beðin um að sýna aðgát og gera ráð fyrir tímabundnum truflunum á svæðinu á meðan framkvæmdum stendur.

Við þökkum fyrir skilninginn og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.