Við leitum að forstöðumanni reikningshalds!

Reykjanesbær leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða reikningshald sveitarfélagsins. Forstöðumaður reikningshalds gegnir lykilhlutverki í fjármálastjórn bæjarins og ber ábyrgð á bókhaldi Reykjanesbæjar og stofnana sveitarfélagsins í heild. Starfið felur jafnframt í sér mikilvægt hlutverk í uppgjörum, greiningu og fjármálastjórn sveitarfélagsins.

Forstöðumaður reikningshalds starfar í nánu samstarfi við fjármálastjóra og aðra stjórnendur og tekur virkan þátt í áframhaldandi þróun fjármálastjórnunar Reykjanesbæjar.

Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar hér

Nánari upplýsingar veitir Regína Fanný Guðmundsdóttir, sviðsstjóri og fjármálastjóri, í gegnum netfangið Regina.F.Gudmundsdottir@Reykjanesbaer.is.

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026.