Vaxandi kvíði og þunglyndi ungmenna og slæmir vegir áhyggjuefni

Þau Hlynur Snær, Berglín Sólbrá, Jón Ragnar og Hermann Nökkvi úr ungmennaráði Reykjanesbæjar.
Þau Hlynur Snær, Berglín Sólbrá, Jón Ragnar og Hermann Nökkvi úr ungmennaráði Reykjanesbæjar.

Unga fólkið á Íslandi vill betri vegi um allt land og ekki síst sjá samgöngubætur á Grindavíkurvegi. Það vill huga betur að ungmennum þar sem kvíði og þunglyndi hefur aukist mikið í þeirra röðum. Þetta er meðal þess sem rætt var og ályktað um á ungmennaráðstefnu UMFÍ nýverið. Reykjanesbær átti þar fjóra fulltrúa.

Ungmennaráðstefna UMFÍ fór fram á Hótel Borealis í Grímsnes- og Grafningshreppi dagana 21. - 23. mars sl. Yfirskrift hennar var Ungt fólk og lýðræði. Fjórir fulltrúar úr ungmennaráði Reykjanesbæjar sótti ráðstefnuna, þau Berglín Sólbrá Bergsdóttir, Hermann Nökkvi Gunnarsson, Hlynur Snær Vilhjálmsson og Jón Ragnar Magnússon.

Ungmennaráðstefnan sendi frá sér eftirfarandi ályktun:

„Ungmennum á Íslandi finnst vegir landsins vera í niðurníðslu. Bæta þarf samgöngur um allt land og veita sveitarfélögum heimild til að laga vegi sem heyra undir Vegagerðina. Þar má nefna Grindavíkurveginn þar sem að mörg alvarleg- og banaslys hafa orðið á þeim vegi. Ungt fólk notar samgöngur daglega, hvort sem þau séu farþegar eða ökumenn og viljum við öll að þau komist heilu og höldnu til náms eða í vinnu. Samgöngubætur má fjármagna með komugjöldum á erlenda ferðamenn, þar sem þeir eru orðnir stór hluti þeirra sem nota vegakerfi landsins. Lítils háttar komugjald þarf til að fjármagna endurbætur á vegakerfinu.

Kvíði og þunglyndi hefur aukist mikið í röðum ungmenna á grunnskóla- og framhaldsskólaaldri. Stytting framhaldsskóla úr fjórum árum í þrjú og minni tími nemenda til að sinna félagsstörfum er að stórum hluta orsakavaldur að mati ungmenna. Það þarf að festa það í lög að það séu starfandi sálfræðingar í öllum grunn- og framhaldssólum á landinu. Einnig vantar betri forvarnir í geðheilbrigðismálum og gætu starfandi skólasálfræðingar séð um þá fræðslu.

Þátttakendur ráðstefnunnar ræddu mikið um lækkun kosningaaldurs niður í 16 ár í sveitastjórnakosningum. Lýðræðisfræðsla og stjórnmálafræðsla þarf að vera aukin í grunn- og framhaldsskólum og nauðsynlegt er að gera heimasíðu Alþingis aðgengilegri og skiljanlegri.

Ráðstefnan þakkar Ungmennafélagi Íslands fyrir að standa að ráðstefnu á borð við Ungt fólk og lýðræði. Við viljum einnig þakka Evrópu unga fólksins fyrir að veita okkur styrk og gera okkur kleift að halda ráðstefnuna. Hún gefur ungu fólki færi á að mynda, auka og víkka tengslanet sitt, ræða viðhorf sín, koma þeim á framfæri og sanna fyrir jafningjum sínum að ungmenni geti haft áhrif. Við hvetjum til þess að ráðstefna sem þessi verði haldin á hverju ári og megi aðrir taka ungmennaráð UMFÍ sér til fyrirmyndar.

Ungt fólk er ekki bara framtíðin, við erum til núna og höfum áhrif í dag!“

Fyrir hönd ráðstefnugesta
Ungmennaráð UMFÍ